Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Múlaþing
Undirritunardagur
16. desember 2025
Útgáfudagur
7. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1612/2025
16. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir stuðningsþjónustu í Múlaþingi samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
1. gr. Almenn heimilisstörf.
Þjónustuþegi greiðir fyrir aðstoð við almenn heimilisstörf. Fullt gjald fyrir stuðningsþjónustu er 2.511 kr. fyrir hvern unninn tíma. Aldrei er þó innheimt fyrir meira en 10 klst. á mánuði. Þjónusta umfram það er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir hvern kílómetra vegna aksturs á vegum starfsmanna stuðningsþjónustu vegna erinda einstaklinga í verslun og þjónustu innan hvers bæjarkjarna er samkvæmt ákvæði ferðakostnaðarnefndar ríkisins, sjá Stjórnarráðið | Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2025.
Mögulegt er að sækja um lækkun gjalds og skal það metið sérstaklega af starfsmönnum fjölskyldusviðs samkvæmt viðmiðum í fylgiskjali með gjaldskrá þessari. Afsláttur eða niðurfelling gjalda er metin samkvæmt innsendum tekjuupplýsingum/skattframtali. Kjósi þjónustuþegi af einhverjum ástæðum að skila ekki inn tekju- og eignaupplýsingum greiða þeir fullt gjald. Undanþága frá gjaldi gildir ekki fyrir akstur og heimsendan mat.
Stuðningsþjónusta vegna fatlaðra barna er gjaldfrjáls.
2. gr. Heimsendur matur.
Þjónustuþegi greiðir fyrir heimsendan mat. Hver skammtur kostar 1.668 kr.
Sveitarfélagið niðurgreiðir hvern matarbakka um 500 kr.
3. gr. Daggjald í dagdvöl aldraðra.
Upphæð daggjalds í dagdvöl aldraðra fylgir reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra. Samkvæmt reglugerðinni er upphæð daggjalds 1.619 kr.
4. gr. Fæðisgjald.
Fæðisgjald í Stólpa, hæfingu/iðju, er 1.327 kr. á dag.
5. gr. Útlagður kostnaður vegna félagslegs stuðnings.
Notandi stuðningsþjónustu greiðir eigin kostnað vegna frístundastarfs sem hann tekur þátt í með stuðningsaðila. Fjölskyldusvið Múlaþings endurgreiðir stuðningsaðila útlagðan kostnað gegn framvísun kvittana, að hámarki 7.000 kr. á mánuði. Sveigjanleiki er varðandi það að nýta fjármagn frá mánuði til mánaðar, þó ekki á milli ára.
6. gr. Garðsláttur.
Greitt er fyrir garðslátt samkvæmt gjaldskrá þjónustumiðstöðva í Múlaþingi. Umsækjendur sem metnir eru í þörf fyrir stuðningsþjónustu geta átt rétt á allt að þremur gjaldfrjálsum garðsláttum yfir sumarið að uppfylltum skilyrðum eigna- og tekjuviðmiða skv. 1. flokki í fylgiskjali með gjaldskrá þessari. Þeir sem falla undir eigna- og tekjuviðmið skv. 2. flokki í fylgiskjalinu geta átt rétt á 50% afslætti á tímagjaldi gjaldskrár þjónustumiðstöðva Múlaþings. Þeir sem falla innan þriðja flokks eiga ekki rétt á garðslætti hjá sveitarfélaginu.
7. gr. Snjómokstur.
Greitt er fyrir snjómokstur samkvæmt gjaldskrá þjónustumiðstöðva í Múlaþingi. Umsækjendur sem metnir eru í þörf fyrir stuðningsþjónustu geta átt rétt á snjómokstri. Í undantekningatilfellum er hægt að sækja um gjaldfrjálsan snjómokstur og er þá miðað við eigna- og tekjuviðmið í 1. flokki í fylgiskjali með gjaldskrá þessari. Þeir sem uppfylla eigna- og tekjuviðmið skv. 2. flokki í fylgiskjalinu geta átt möguleika á 50% afslætti á tímagjaldi gjaldskrár þjónustumiðstöðva Múlaþings. Þeir sem falla innan þriðja flokks eiga ekki rétt á snjómokstri hjá sveitarfélaginu. Undantekningar geta átt við í tilfelli þeirra sem hafa samþykkta ferðaþjónustu eða njóta heimahjúkrunar.
8. gr. Innheimta.
Gjöld eru innheimt mánaðarlega. Greiðsluseðlar berast ekki heim með pósti nema þess sé sérstaklega óskað.
9. gr. Endurskoðun upphæða.
Tímagjald fyrir stuðningsþjónustu og viðmiðunarupphæð eignarmarka tekur breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs sem reiknast frá 1. október ár hvert. Viðmiðunarupphæð tekjumarka tekur breytingum í samræmi við lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.
10. gr. Gildistaka og lagastoð.
Gjaldskrá þessi, sem er sett í samræmi við 26. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1672/2024.
Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 15. desember 2025.
Múlaþingi, 16. desember 2025.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026