Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

16. apríl 2021

Útgáfudagur

4. maí 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 492/2021

16. apríl 2021

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 971/2009 um árangurstengda tilfærslu starfsþátta í Háskóla Íslands.

1. gr.

1. málsl. töluliðar 1, Stigaleið, í 1. mgr. 4. gr. reglnanna orðast svo: Kennarar með flest rannsóknastig á ári úr tilteknum flokkum matskerfis Háskóla Íslands (aflstig), sbr. töflu í lok 7. gr. reglna nr. 1300/2020 um framgang akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, sbr. einnig lið 1, Rannsóknir, í 8. gr. sömu reglna.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 16. apríl 2021.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 4. maí 2021

Tengd mál