Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

2. desember 2025

Útgáfudagur

16. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1371/2025

2. desember 2025

REGLUR

um bílastæðakort íbúa í Reykjavíkurborg.

1. gr. Íbúakort.

Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, gefur út bílastæðakort, hér eftir nefnd íbúakort 1 og íbúakort 2 (saman nefnd íbúakort), til íbúa sem búa á íbúakortasvæðum innan Reykjavíkur í samræmi við nánari skilyrði sem hér greinir.

Íbúakort veitir heimild til að leggja ökutæki án endurgjalds í gjaldskylda stöðureiti innan gildissvæðis íbúakorts, með þeim takmörkunum sem greinir í 5. gr. Greitt er fyrir íbúakort í samræmi við gjaldskrá hverju sinni.

2. gr. Íbúð.

Aðeins er heimilt að gefa út íbúakort til íbúa í íbúðarhúsnæði, hér eftir kallað íbúð, sem uppfyllir öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Íbúðarhúsnæði skal vera skráð sem slíkt í fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjasstofnunar og staðsett innan gildissvæðis íbúakorts samkvæmt 5. gr.
  1. Íbúð má ekki vera skilgreint vistheimili, öryggisíbúð, hjúkrunarheimili, dvalarheimili eða sambærilegt.
  1. Íbúð má ekki vera húsnæði sérstaklega ætlað námsmönnum, s.s. íbúð leigð af Félagsstofnun stúdenta eða Byggingarfélagi námsmanna.
  1. Íbúð má ekki fylgja réttur til notkunar á bílastæði innan lóðar, hvort heldur er til einkanota eða í sameign, samkvæmt deiliskipulagi, lóðarleigusamningi, mæliblaði, lóðaruppdrætti, staðfestri eignaskiptayfirlýsingu eða skráningu í fasteignaskrá.

Þar sem ekki liggur fyrir eignaskiptayfirlýsing eða í eignaskiptayfirlýsingu er kveðið á um að stæði séu í sameign og íbúðir eru fleiri en bílastæði innan lóðar, nægir yfirlýsing um afnotaskipti þar sem taldar eru upp þær íbúðir sem hafa afnotarétt af stæðum í sameign innan lóðar til að skapa mögulegan íbúakortarétt sem nemur mismuni á milli fjölda bílastæða og íbúða. Sama á við ef um er að ræða húsnæði með blandaða notkun, s.s. atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði.

Einungis er heimilt að gefa út eitt íbúakort fyrir hverja íbúð sem uppfyllir ofangreind skilyrði, íbúakort 1.

Ef íbúakort 1 hefur verið útgefið fyrir íbúð eða ef réttur til notkunar á að hámarki einu bílastæði innan lóðar fylgir skv. d-lið 2. mgr. er heimilt að gefa út eitt íbúakort 2 fyrir hverja íbúð, að öðrum skilyrðum reglna þessara uppfylltum.

3. gr. Umsækjandi.

Aðeins er heimilt að gefa út íbúakort til umsækjanda sem uppfyllir öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Umsækjandi skal vera einstaklingur með skráð lögheimili í íbúð sem uppfyllir skilyrði 2. gr.
  2. Umsækjandi skal vera eigandi íbúðarinnar eða hafa skriflega heimild frá eiganda hennar til að sækja um íbúakort.
  3. Umsækjandi skal vera skráður eigandi eða umráðamaður ökutækis samkvæmt 4. gr., sbr. 37. tl. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
  4. Umsækjandi skal ekki vera í skuld við Bílastæðasjóð Reykjavíkur sem komin er til milliinnheimtu eða löginnheimtu og skal hafa að fullu greitt íbúakortagjöld frá fyrri tímabilum.

Einungis er heimilt að gefa út eitt íbúakort 1 og eitt íbúakort 2 til hvers umsækjanda og gildir það óháð fjölda íbúða sem eru í eigu sama umsækjanda.

Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, hefur heimild til þess að veita tímabundna undanþágu frá kröfum um skráningu lögheimilis til umsækjenda sem dvelja í athvörfum og geta ekki vegna sérstakra, tímabundinna aðstæðna flutt lögheimili sitt á dvalarstað.

Starfsmenn sendiráða á Íslandi sem eru erlendir ríkisborgarar og aðrir sem ekki eiga lögheimili á Íslandi skv. ákvæði 5. mgr. 14. gr. laga nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur, eru undanþegnir frá kröfu um skráningu lögheimilis, eigi þeir sannarlega fast aðsetur á íbúakortasvæði.

4. gr. Ökutæki.

Aðeins er heimilt að gefa út íbúakort fyrir ökutæki sem uppfyllir öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Ökutæki skal bera gild íslensk skráningarmerki.
  2. Ökutæki skal vera heimilt að leggja á götum og almenningsbifreiðastæðum samkvæmt ákvæðum umferðarlaga og lögreglusamþykktar.

Heimilt er að gefa út fleiri en eitt íbúakort fyrir sama ökutæki, að uppfylltum öðrum skilyrðum reglna þessara.

5. gr. Gildissvæði.

Hvert íbúakort gildir innan skilgreinds íbúakortasvæðis. Svæðin skulu ákveðin af umhverfis- og skipulagsráði og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Íbúakort veitir þó ekki heimild til að leggja gjaldfrjálst í stöðureiti á svæðum með gjaldskyldu P4. Kortin veita heldur ekki heimild til að leggja gjaldfrjálst á eftirtöldum götum og svæðum:

  1. Laugavegi vestan Snorrabrautar. 
  2. Skólavörðustíg milli Laugavegs og Bergstaðastrætis.
  3. Bergstaðastræti milli Laugavegs og Skólavörðustígs.
  4. Bergstöðum, bílahúsi, bílaplan við Bergstaðastræti 6.
  5. Kvosinni, þ.e. Lækjargötu, Kirkjutorgi, Pósthússtræti, Austurstræti, Hafnarstræti, Veltusundi.
  6. Kirkjustræti, Aðalstræti, Tryggvagötu og Naustunum.

Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, skal á vefsíðu sinni birta yfirlitsmynd yfir gildissvæði íbúakorta.

6. gr. Umsókn um íbúakort.

Sækja skal um íbúakort með rafrænum hætti á mínum síðum Reykjavíkurborgar.

Ef umsækjandi er ekki eigandi íbúðar samkvæmt 2. gr., skal undirritað samþykki eiganda íbúðarinnar fylgja með umsókn. Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, skal gera aðgengilegt eyðublað um samþykki íbúðareiganda fyrir nýtingu íbúakortaréttar.

Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, aflar annarra nauðsynlegra upplýsinga frá umsækjanda og úr opinberum skrám, svo sem þjóðskrá, fasteignaskrá og ökutækjaskrá, eftir því sem við á og í samræmi við gildandi lög.

Úthluta skal umsækjanda korti fyrir það gildissvæði þar sem lögheimili hans er. Ef umsækjandi á lögheimili á mörkum tveggja gildissvæða er honum heimilt að velja á hvoru svæðanna íbúakortið gildir.

7. gr. Gildistími og notkun.

Íbúakort skulu gefin út með rafrænum hætti til eins árs í senn en þó aldrei til lengri tíma en heimild frá eiganda íbúðar eða skráning um umráð ökutækis bera með sér.

Íbúakort verður óvirkt þegar skilyrði fyrir útgáfu þess eru ekki lengur uppfyllt. Handhafa íbúakorts ber að tilkynna Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði, ef skilyrði fyrir útgáfu íbúakortsins eru ekki lengur uppfyllt vegna breyttra aðstæðna korthafa, svo sem vegna flutnings á lögheimili, sölu ökutækis eða annarra sambærilegra atvika.

8. gr. Gjaldtaka.

Fyrir útgáfu, breytingar og endurnýjun á íbúakorti skal greiða gjald samkvæmt auglýstri gjaldskrá. Gjaldið skal greitt þegar umsókn hefur verið samþykkt. Íbúakort er ekki virkjað fyrr en Reykjavíkurborg hefur móttekið greiðsluna.

Á meðan umsókn um íbúakort hefur ekki verið afgreidd og íbúakort ekki verið virkjað ber umsækjanda að greiða fyrir gjaldskyld bílastæði þegar lagt er í þau á viðkomandi íbúakortasvæði. Sama gildir þegar íbúakort hefur runnið út og ný umsókn hefur ekki verið afgreidd og/eða nýtt kort ekki verið virkjað.

9. gr. Ógilding.

Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði, er heimilt að ógilda íbúakort ef handhafi verður uppvís að misnotkun kortsins. Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, getur einnig ógilt íbúakort ef kunnugt verður um að skilyrði fyrir veitingu íbúakorts eru ekki lengur uppfyllt, án þess að handhafi kortsins hafi tilkynnt um það í samræmi við 7. gr. Handhafi íbúakorts sem hefur verið ógilt í samræmi við ákvæði þetta getur ekki fengið útgefið nýtt kort í tvö ár frá ógildingu útgefins korts.

Ef mánaðarlegar greiðslur eru ekki inntar af hendi er Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði, heimilt að fella íbúakort úr gildi.

Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, skal tilkynna handhafa íbúakorts um ógildingu korts.

10. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, hafa hlotið samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og voru samþykktar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 19. nóvember 2025 og á fundi borgarráðs 27. nóvember 2025 og taka gildi eftir birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Á sama tíma falla úr gildi reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík, nr. 370/2021. Reglur þessar eru tímabundnar og gilda til 31. desember 2027.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 2. desember 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025

Tengd mál