Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skatturinn
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
2. janúar 2025
Útgáfudagur
16. janúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 10/2025
2. janúar 2025
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2025.
- Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2025, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1603/2024, er til og með 31. maí 2025 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@skatturinn.is fyrir lok umsóknarfrests.
- Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2024 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. skattstofnar tekjuársins 2023, og að álögð gjöld 2025 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en var við álagningu 2024.
- Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2025 ásamt lögboðnum fylgiskjölum, þ.m.t. ársreikningi. Hafi umsækjandi þegar skilað rafrænu framtali 2025 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
- Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1603/2024 og tekur þegar gildi.
Reykjavík, 2. janúar 2025.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 16. janúar 2025