Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
11. apríl 2022
Útgáfudagur
4. maí 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 515/2022
11. apríl 2022
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 60/2019 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðsins „Hjúkrunarfræðideild“ í fyrirsögn töluliðar I í 2. mgr. 6. gr. reglnanna koma orðin: Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
2. gr.
Í stað orðsins „Hjúkrunarfræðideild“ í fyrirsögn töluliðar I í 3. mgr. 7. gr. reglnanna koma orðin: Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
3. gr.
Í stað orðsins „hjúkrunarfræðideildar“ í a-lið undir tölulið I í 3. mgr. 7. gr. reglnanna koma orðin: hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.
4. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2022.
Háskóla Íslands, 11. apríl 2022.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 4. maí 2022