Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Félagsmál, Húsnæðismál, Múlaþing
Undirritunardagur
23. september 2024
Útgáfudagur
7. október 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1115/2024
23. september 2024
REGLUR
um breytingu á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Múlaþingi, nr. 175/2023.
1. gr.
1. mgr. 6. gr. reglnanna breytist og verður svohljóðandi:
Fjárhæðir við útreikning.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er reiknaður sem ákveðið hlutfall af húsnæðisbótum þannig að fyrir hverjar kr. 1.000 fær leigjandi að hámarki kr. 900 í sérstakan húsnæðisstuðning. Þó geta húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur aldrei numið hærri fjárhæð en samtals kr. 100.000 á mánuði né farið yfir 75% af leigufjárhæð.
Sérstökum húsnæðisstuðningi verður ekki beitt til að greiða niður húsaleigu umfram það viðmið að leigjandi beri kr. 50.000 í kostnað af húsaleigu.
2. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og byggjast á meginreglum þeirra laga, sbr. einkum 1. gr. og IV. kafla, öðlast þegar gildi.
Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 11. september 2024.
Egilsstöðum, 23. september 2024.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 7. október 2024