Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalvíkurbyggð
Málaflokkur
Hafnamál
Undirritunardagur
8. desember 2025
Útgáfudagur
22. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1433/2025
8. desember 2025
GJALDSKRÁ
Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Gjaldskrá fyrir hafnir Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar er sett samkvæmt heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
Við ákvörðun hafnagjalda skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969. Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnasjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnanna og njóta þjónustu þeirra.
Hafnagjöld:
Lestargjöld:
21,50 kr. á mælieiningu.
Af öllum skipum skal greiða lestargjald 21,50 kr. á mælieiningu en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði að jafnaði.
Bryggjugjöld:
9,30 kr. á mælieiningu fyrir hverjar byrjaðar 24 klst.
Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og bátum undir 100 bt sem mánaðargjald.
Minni bátar undir 10 bt greiða 10.185 kr. fyrir hvern mánuð.
Bátar milli 10 bt og allt að 20 bt greiða 11.259 kr. fyrir hvern mánuð.
Bátar milli 20–50 bt greiða 15.759 kr. fyrir hvern mánuð.
Bátar milli 50–100 bt greiða 20.269 kr. fyrir hvern mánuð.
100% álag er vegna fasts viðlegupláss.
Gjald vegna Sævars (Hríseyjarferju) bryggjugjald og lestargjald í 15 daga hvern mánuð.
Gjald vegna Sæfara (Grímseyjarferju) bryggjugjald og lestargjald í 30 daga hvern mánuð.
Önnur skip sem ekki greiða aflagjald:
Farþegagjald greitt mánaðarlega samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðila s.s. hvalaskoðun/sjóstöng, 246 kr. á farþega.
Gjöld fyrir skútur/skemmtibáta – aðkomu pr. viku, 21.445 kr.
Gjöld fyrir skútur/skemmtibáta – aðkomu pr. dag styttra en 7 daga, 4.056 kr.
Vörugjöld:
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar, vegna álagningar vörugjalda.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til erlendra hafna, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.
Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
| 1. fl.: | Gjald 495 kr. fyrir hvert tonn: |
| Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, sement, asfalt, steinefni, áburður, úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu. | |
| 2. fl.: | Gjald 619 kr. fyrir hvert tonn: |
| Lýsi, fiskimjöl, fiskafóður og sjávarafurðir. | |
| 3. fl.: | Gjald 908 kr. fyrir hvert tonn: |
| Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurolíur, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, áfengar drykkjarvörur og ávextir. | |
| 4. fl.: | Gjald 2.446 kr. fyrir hvert tonn: |
| Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1.-3. fl. | |
| 5. fl.: | Aflagjald: |
| Ferskur fiskur 1,6% | |
| Frosinn fiskur af brúttóverðmæti 0,80% | |
| Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. | |
| Kaupandi aflans innheimti gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega. |
Vatns- og rafmagnssala:
Í samræmi við reglugerð nr. 125/2015 um brennisteinsinnihald í fljótandi eldsneyti þá skulu öll skip sem liggja við hafnarbakka og geta tekið við rafmagni úr landi tengjast landrafmagni. Þeim skipum sem unnt er að þjóna með þessum hætti er því óheimilt að keyra ljósavélar, nema viðvera þeirra í höfn sé innan við 6 klukkustundir.
Rafmagn pr. kWst.til skipa, báta ,verktaka og annarra, 24,66 kr.
Rafmagn pr. kWst. í smábátahöfnum, 27,35 kr.
Verð á rafmagni pr. kWst. breytist í samræmi við gjaldskrá RARIK og Orkusölunnar.
Útleiga á rafmagnsmælum, 454 kr.
Tengigjald rafmagns, 5.893 kr.
Kalt vatn, 423 kr. pr. tonn.
Vatnsgjald smábáta, 536 kr.
Vatnsgjald, lágmarksgjald, 3.731 kr.
Heitt vatn, 474 kr. pr. tonn.
Heitt vatn, lágmarksgjald, 5.624 kr.
Ef tenging fer fram utan reglubundins vinnutíma, greiðist útkall, 10.000 kr. á klst.
Lágmarksútkall er 4 klst.
Móttaka skipa:
Festargjald fyrir hverja komu/brottför fyrir hvern mann er 18.370 kr. í dagvinnu. Í yfirvinnu er það 34.779 kr. Þegar skip leggur að bryggju skal a.m.k. einn starfsmaður hafnarinnar taka á móti því, en þó er heimilt að veita undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.
Siglingavernd:
Við komu skipa, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld:
Öryggisgjald, 65.676 kr.
Öryggisgæsla pr. öryggisvörð í dagvinnu, 5.660 kr. á klst.
Öryggisgæsla pr. öryggisvörð í yfirvinnu, 10.000 kr. á klst.
Geymslugjald á hafnasvæði:
Hafnarbakki/vörur, mánaðargjald 165 kr. pr. fermetra.
Veiðarfæri og búnaður frítt í 5 daga síðan 6.759 kr. á sólarhring.
Geymslugjald á 20 feta gámi mánaðargjald, 1.734 kr.
Geymslugjald á 40 feta gámi mánaðargjald, 2.075 kr.
Vigtargjald:
Almenn vigtun á lönduðum afla, 279 kr. á tonn.
Flutningabílar, 3.374 kr. pr. skipti.
Vigtun lágmarksgjald, 2.250 kr. pr. mánuð.
Kranagjald, 351 kr. pr. tonn.
Útkall milli kl. 17.00 og 08.00 virka daga, svo og um helgar, greiðist sérstaklega 10.000 kr. pr. klst.
Lágmarksútkall er 4 klst.
Gjöld fyrir smábáta:
Bás við flotbryggju, bátar undir 10 brt, 12.374 kr. pr. mánuð.*
Legupláss við flotbryggju, bátar milli 10 og 20 bt, 24.747 kr. pr. mánuð.*
Legufæragjald, 2.789 kr. pr. mánuð.
Uppsátursgjald, 7.946 kr. pr. mánuð.
Fyrir aðstöðu til þrifa og minni viðgerða, 5.624 kr. á viku.
Daggjald báta undir 10 bt 1-10 dagar, 691 kr. pr. dag.
Daggjald báta 10–20 bt 1–10 dagar, 774 kr. pr. dag.
Daggjald báta +50 bt 1-10 dagar, 1.434 kr. pr. dag.
* Gera þarf skriflega samninga um leigu á básum og leguplássum.
Úrgangs- og förgunargjald:
Samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 og reglugerð nr. 1200/2014 ber skipstjóri ábyrgð á að úrgangi frá skipi sé skilað til hafnar eða viðurkennds þjónustuaðila áður en látið er úr höfn.
Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningarlaust skila fyrir komu skips til hafnar útfylltu eyðublaði til hafnarinnar um magn og tegund þess úrgangs sem skilað skal á land. Misbrestur á því getur leitt til tilkynningar til Umhverfis- og orkustofnunar.
Skip sem óskar eftir að Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar taki á móti úrgangi skal tilkynna um það að lágmarki 48 klst. fyrir komu til hafnar.
Fyrir öll skip sem falla undir 11. gr. c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 skal greiða eftirfarandi vegna úrgangs:
- Úrgangsgjald: Við komu til hafna skal greiða 1,03 kr. á bt. Gjald þetta skal standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á úrgangi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 7.281 kr. og hámarksgjald kr. 66.131 kr.
- Úrgangsgjald: Gjald skv. a-lið má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð. Fast gjald verður þá 0,51 kr. á bt. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 7.281 kr. og hámarksgjald 33.437 kr.
- Úrgangsgjald: Fyrir skip og báta sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á sama almanaksári skal greiða samkvæmt b-lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
- Úrgangsgjald: Fyrir skip og báta sem eru undir 100 m að lengd, eru ekki hafnsöguskyld og hafa varanlega viðveru í höfnum Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar skal greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á úrgangi. Mánaðargjaldið skal vera 7.281 kr. á mánuði.
- Förgunargjald: Við komu til hafnar skal greiða förgunargjald fyrir öll skip sem falla undir 11. gr. laga nr. 33/2004 óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Förgunargjaldið skal standa undir förgun úrgangs sem skilað er á land:
Fyrir farþegaskip yfir 60 metra á lengd skal greiða 2,04 kr. á bt. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:
Farþegaskip undir 30.000 bt 5 m³.
Farþegaskip frá 30.000 bt til 100.000 bt: 10 m³.
Farþegaskip yfir 100.000 bt: 15 m³.
Fyrir önnur skip skal greiða 2,82 kr. á bt. Gjaldið miðast við 5 m³ af sorpi.
Greiða skal samkvæmt h-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun. Skip og bátar sem eru undir 60 metrar á lengd og hafa varanlega viðveru í höfnum Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar skulu háðir sérstöku samkomulagi til að uppfylla skilyrði í lögum og reglum um skil á sorpi.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 48.452 kr. - Förgunargjald: Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald skv. e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar innan tveggja sólarhringa frá brottför skips.
- Samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2014, um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum, getur Umhverfis- og orkustofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfis- og orkustofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.
- Fyrir skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. og 11. gr. c. laga nr. 33/2004 skal greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu sorpi. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er 15.036 kr. á hvern rúmmetra og lágmarksmagn einn rúmmetri. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.
Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti (sérlosun) 25.170 kr.
Sorphirðugjald frístundabáta, 722 kr. á mánuði.
Sorphirðugjald atvinnubáta undir 20 bt, 2.735 kr. á mánuði.
Sorphirðugjald atvinnubáta 20–100 bt, 4.541 kr. á mánuði.
Sorphirðugjald skipa yfir 100 bt, 8.473 kr. fyrir hverja löndun.
Um breytingar á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar:
Stjórn hafnar, skv. 2. tölul. 8. gr. reglugerðar um hafnamál, skal semja gjaldskrá fyrir höfn þar sem nánar er kveðið á um innheimtu gjalda samkvæmt þessari grein. Miða skal við að gjaldtaka standi undir rekstri hafnarinnar, sbr. 5. tölul. 3. gr., þ.m.t. fjármagnskostnaði, afskriftum, kostnaði við endurnýjun hafnarinnar og stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun hafnarinnar. Aflagjald í gjaldskrá breytist ekki nema með sérstakri ákvörðun sveitarstjórnar.
Um innheimtu og greiðslu gjalda:
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
Skipstjóri, eigandi og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar vegna skipsins. Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða komið á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnanna.
Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Öll gjöld í þessari gjaldskrá eru án virðisaukaskatts.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samkvæmt hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1422/2024.
Samþykkt í veitu- og hafnaráði Dalvíkurbyggðar 19. september 2025.
Samþykkt í byggðarráði Dalvíkurbyggðar 6. nóvember 2025.
Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. nóvember 2025.
Dalvíkurbyggð, 8. desember 2025.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 22. desember 2025