Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 765/2026

22. júní 2026

REGLUR

um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um endurbótaáætlanir og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd varðandi endurbótaáætlanir vegna laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og varðandi skilameðferð vegna laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir Evrópusambandsins, sbr. 3. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, og bókun 1 við EES-samninginn:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1075 frá 23. mars 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina inntak endurbótaáætlana, skilaáætlana og skilaáætlana samstæðu, lágmarksviðmið sem lögbært yfirvald á að meta að því er varðar endurbótaáætlanir og endurbótaáætlanir samstæðu, skilyrði fyrir fjárstuðningi innan samstæðu, kröfur til óháðra matsaðila, samningsbundna viðurkenningu á niðurfærslu- og umbreytingarheimildum, verklag og inntak tilkynningarskyldu og tilkynningar um frestun og rekstrarlega starfsemi skilaráðanna, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237/2019 frá 27. september 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 3 frá 5. janúar 2023, bls. 58-61. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 132-202.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1400 frá 10. maí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina lágmarksatriði áætlunar um endurskipulagningu rekstrar og lágmarksinnihald fram­vinduskýrslna vegna framkvæmdar áætlunarinnar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237/2019 frá 27. september 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 3 frá 5. janúar 2023, bls. 58-61. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34 frá 12. maí 2021, bls. 352-357.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1624 frá 23. október 2018 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklagsreglur og stöðluð eyðublöð og sniðmát fyrir tilhögun upplýsingamiðlunar að því er varðar skilaáætlanir fyrir lánastofnanir og verð­bréfa­fyrirtæki samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB og um niður­fellingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1066 með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2020 frá 12. júní 2020 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 22 frá 16. mars 2023, bls. 22-23. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 147-211.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/348 frá 25. október 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreind eru viðmið til að meta hvaða áhrif fall stofnunar hefur á fjármálamarkaði, aðrar stofnanir og aðstæður til fjármögnunar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2020 frá 12. júní 2020 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 22 frá 16. mars 2023, bls. 22-23. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 100-110.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/622 frá 15. apríl 2021 um tæknilega framkvæmdastaðla fyrir beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar samræmd skýrslusniðmát, fyrirmæli og aðferðafræði um hvernig gefa eigi skýrslu um lágmarkskröfuna um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 248/2022 frá 23. september 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 31 frá 20. apríl 2023, bls. 41-42. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 97-110.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/763 frá 23. apríl 2021 um tæknilega framkvæmdastaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar skýrslugjöf til eftirlitsyfirvalda og opinbera birtingu á lágmarkskröfunni um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 325/2022 frá 9. desember 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 48 frá 29. júní 2023, bls. 58-59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 65 frá 29. ágúst 2024, bls. 1-83.
  7. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1340 frá 22. apríl 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir ákvörðun á innihaldi samningsskilmála um viðurkenningu á heimildum til að fresta skilameðferð, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 248/2022 frá 23. september 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 31 frá 20. apríl 2023, bls. 41-42. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 73 frá 12. október 2023, bls. 156-158.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1527 frá 31. maí 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir samningsbundna viðurkenningu á niðurfærslu- og umbreytingarheimildum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2024 frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 25 frá 21. mars 2024, bls. 399-402.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1751 frá 1. október 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar samræmd snið og sniðmát fyrir tilkynningar um ákvörðun á því hve óframkvæmanlegt er að fella inn samningsbundna viðurkenningu á niðurfærslu- og umbreytingarheimildum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2022 frá 10. júní 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 66 frá 13. október 2022, bls. 29-30. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 73 frá 12. október 2023, bls. 37-50.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/365 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/1624 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklagsreglur, stöðluð eyðublöð og sniðmát fyrir tilhögun upplýsingamiðlunar að því er varðar skilaáætlanir fyrir lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2022 frá 10. júní 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 66 frá 13. október 2022, bls. 29-30. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 73 frá 12. október 2023, bls. 51-95.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1618 frá 6. júní 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/763 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/59/ESB að því er varðar skýrslugjöf til eftirlitsyfirvalda og opinbera birtingu á lágmarkskröfunni um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 96/2025 frá 8. maí 2025 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 46 frá 24. júlí 2025. Reglugerðin er birt í fylgiskjali með reglum þessum.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar með stoð í 5. mgr. 9. gr., 8. mgr. 10. gr., 3. mgr. 11. gr., 3. mgr. 12. gr., 3. mgr. 13. gr., 3. mgr. 14. gr., 4. mgr. 22. gr., 10. mgr. 23. gr., 36. gr., 9. mgr. 60. gr., 4. mgr. 78. gr. a og 5. mgr. 89. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, og 4. mgr. 82. gr. a, 3. mgr. 82. gr. b, 3. mgr. 82. gr. e og 2. mgr. 109. gr. r laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

Reglurnar öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglnanna falla úr gildi reglur nr. 800/2024 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um endurbótaáætlanir og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.

 

Seðlabanka Íslands, 22. júní 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Rannveig Júníusdóttir

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál