Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. september 2026

Útgáfudagur

23. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1024/2026

9. september 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds, nr. 244/2014.

1. gr.

1. og 8. málsl. 13. gr. reglnanna falla brott.

2. gr.

Á eftir 13. gr. reglnanna bætist við ný grein, 13. gr. a., sem ásamt fyrirsögn orðast svo:

Stúdentaklíník sálfræðideildar.

Stúdentaklíník kr. 2.500 (hvert viðtal)

Stúdentaklíník sálfræðideildar er þjálfunarstöð meistaranema í klínískri sálfræði. Þar er nemum og starfsfólki HÍ og börnum þeirra 18 ára og yngri boðið upp á sálfræðiþjónustu. Sálfræðinemarnir veita þjónustuna undir handleiðslu sérfræðinga í klínískri sálfræði.

3. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði, eru settar í samræmi við 71. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, með heimild í c-lið 2. mgr. 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og 4. mgr. 19. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006 og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. september 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 23. september 2026

Tengd mál