Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Getraunir
Undirritunardagur
23. september 2026
Útgáfudagur
28. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1037/2026
23. september 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár, nr. 1170/2012.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:
- Við c-lið 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef jöfnunarsjóður nær 6 milljónum evra skulu umfram framlög leggjast við 1. vinning, nema ef 1. vinningur er yfir 25 milljónum evra. Í þeim tilfellum helst umfram fjárhæðin inni í jöfnunarsjóði. Ef jöfnunarsjóður er hærri en 6 milljónir evra í næsta útdrætti eftir að 1. vinningur hefur gengið út, skal umfram fjárhæðin bætast við 1. vinning.
- Í stað orðanna „2. vinningsflokk í næsta útdrætti“ í a-lið 2. mgr. kemur: jöfnunarsjóð.
- b-liður 2. mgr. orðast svo: engin þátttakandi hafi allar 6 aðaltölur réttar, skal vinningsfjárhæð þess flokks fara í jöfnunarsjóð.
- 6. mgr. fellur brott.
2. gr.
3. tölul. 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
3. Vikinglottó:
| Sex réttar aðaltölur og Víkingatala | 1:61.357.560 |
| Sex réttar aðaltölur | 1:15.339.390 |
| Fimm réttar aðaltölur og Víkingatala | 1:243.482 |
| Fimm réttar aðaltölur | 1:60.871 |
| Fjórar réttar aðaltölur | 1:950 |
| Þrjár réttar aðaltölur | 1:53 |
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir, nr. 26/1986, öðlast gildi 1. október 2026.
Dómsmálaráðuneytinu, 23. september 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Berglind Bára Sigurjónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 28. september 2026