Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Innflutningur
Undirritunardagur
17. nóvember 2021
Útgáfudagur
18. nóvember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1294/2021
17. nóvember 2021
REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
1. gr.Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III B og IV B við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum. 2. gr.Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. Fyrir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er tilgreint gildir tiltekinn verð- og/eða magntollur samkvæmt útgefnum tollkvótum. 3. gr.Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Við úthlutun á tollkvótum sem fellur undir tollskrárnúmer þar sem vörumagn er tilgreint skal auglýsa eftir umsóknum um tollkvóta. 4. gr.Verði umsóknir um tollkvóta í þeim tollskrárnúmerum þar sem magn er tilgreint meiri en það magn sem auglýst er skal leita tilboða í tollkvóta. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Úthlutun er ekki framseljanleg. 5. gr.Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 189/1990, um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum, með síðari breytingum. 6. gr.Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. gr. og 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. 7. gr.Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2022. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1324/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2021. F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Benedikt Árnason. Elísabet Anna Jónsdóttir. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
B deild - Útgáfud.: 18. nóvember 2021