Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Mosfellsbær

Málaflokkur

Mosfellsbær, Byggingarmál, Mannvirki

Undirritunardagur

3. desember 2025

Útgáfudagur

30. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1549/2025

3. desember 2025

GJALDSKRÁ

byggingarmála í Mosfellsbæ vegna leyfisveitinga, umsýslu og þjónustu.

1. gr.

Fyrir útgáfu leyfa, úttektir, vottorð, skjalagerð, yfirlestur gagna og aðra umsýslu og þjónustu sem Mosfellsbær veitir vegna byggingarleyfisskyldra framkvæmda innheimtir Mosfellsbær í umboði bæjarstjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Fyrir neðangreindar úttektir og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, skal innheimta gjöld sem hér segir:

    kr.
A) Úttekt vegna byggingarstjóraskipta, sbr. 30. gr. 28.900
B) Áfangaúttekt, sbr. 34. gr. 15.600
C) Lokaúttekt, sbr. 36. gr.  
  C1) 5 íbúðir eða færri og atvinnuhús undir 2.000 m² 28.900
  C2) 6-19 íbúðir og atvinnuhús 2.000 – 10.000 m² 43.300
  C3) Fleiri en 20 íbúðir og atvinnuhús stærra en 10.000 m² 57.700
D) Stöðuúttekt, öryggisúttekt, sbr. 35. gr. 31.500
E) Byggingarleyfi/byggingarheimild, sbr. 13. gr., afgreiðslugjald 16.400
F) Byggingarleyfi/byggingarheimild, sbr. 13. gr., gjald/m³ í húsi 157
G) Stöðuleyfi fyrir gáma og aðra lausamuni skv. gr. 2.6.1. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 til eins árs 79.700
H) Tilkynningarskyldar framkvæmdir, yfirferð og afgreiðslugjald 28.900

3. gr.

Byggingarfulltrúi áætlar fjölda stöðuúttekta skv. D-lið 2. gr. áður en byggingarleyfi er gefið út.

4. gr.

Fyrir yfirferð aðal-, sér-, og byggingaruppdrátta auk greinargerða skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010:

    kr.
A) Vegna einbýlishúsa og frístundahúsa:  
  A1) aðaluppdrættir 85.200
  A2) séruppdrættir 85.200
B) Vegna par- og raðhúsa, pr. íbúð:  
  B1) aðaluppdrættir 49.400
  B2) séruppdrættir 49.400
C) Vegna fjölbýlishúsa:  
  C1) aðaluppdrættir fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð 22.900
  C2) séruppdrættir fyrir fyrstu 5 íbúðirnar, pr. íbúð 22.900
  C3) aðaluppdrættir fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð 10.000
  C4) séruppdrættir fyrir 6. – 19. íbúð, pr. íbúð 10.000
  C5) aðaluppdrættir fyrir 20 íbúðir og fleiri, pr. íbúð 5.800
  C6) séruppdrættir fyrir 20 íbúðir og fleiri, pr. íbúð 5.800
D) Vegna annars húsnæðis eftir stærð, þ.m.t. atvinnu- og gripahús:  
  D1) aðaluppdrættir fyrir húsnæði allt að 2.000 m² brúttó 157.800
  D2) séruppdrættir fyrir húsnæði allt að 2.000 m² brúttó 157.800
  D3) aðaluppdrættir fyrir húsnæði milli 2.000 – 10.000 m² brúttó 172.900
  D4) séruppdrættir fyrir húsnæði milli 2.000 – 10.000 m² brúttó 172.900
  D5) aðaluppdrættir fyrir húsnæði stærra en 10.000 m² brúttó 218.000
  D6) séruppdrættir fyrir húsnæði stærra en 10.000 m² brúttó 218.000
E) Minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa. o.fl., aðal-/séruppdrættir 37.600
F) Breyting á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis, aðal-/séruppdrættir 59.000
G) Breyting á innra skipulagi íbúðarhúsnæðis, útlitsbreyting, svalaskýli, lóð o.fl., aðal-/séruppdrættir 22.800
H) Aðkeypt skoðun og yfirferð á uppdráttum og greinargerðum skv. samningi/
reikningi

5. gr.

Fyrir neðangreind vottorð, skjalagerð og yfirlestur ýmiss konar skal innheimta gjöld sem hér segir, sbr. 51. og 53. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010:

    kr.
A) Lokaúttektarvottorð, sbr. 36. gr. 18.400
B) Fokheldisvottorð, sbr. 55. gr. 18.400
C) Stöðuvottorð, sbr. 55. gr. 18.400
D) Stofnskjalagerð, merkjalýsing, og nýskráning, hver lóð 30.300
E) Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, stór 30.300
F) Yfirlestur eignaskiptayfirlýsinga, lítil 26.700
G) Samrunaskjalagerð, merkjalýsing (hver lóð) 40.300
H) Útsetning húss og lóðar, með tékkmælingu 160.000
I) Útsetning húss og lóðar, einföld útsetning 96.600
J) Nafnabreyting, lands eða lóðar 26.700
K) Skjalagerð/lóðarleigusamningur (hver lóð) 30.300
L) Stofnun lóðar í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands skv. gjaldskrá HMS
M) Aðkeypt vinna við gerð og breytingar, s.s. lóðar- og hæðarblöð skv. samningi/
reikningi
N) Skráning viðbótar fasteignanúmers eða fjölgun á íbúðum skv. samningi og samþykkt bæjarráðs Mosfellsbæjar.

Innheimtur verður sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni kostnaður vegna hönnunar gatna, gerðar mæli-, lóðar- og hæðarblaða auk aðkeyptrar vinnu og efniskostnaðar við breytingu á lögnum og götusniði.

6. gr.

Fyrir hverja skoðun/skoðunarskýrslu byggingarfulltrúa á þegar byggðum íbúðum skal innheimta skoðunargjald sem hér segir:

    kr.
A) Skoðunargjald pr. íbúð í fjöleignarhúsi 29.400
B) Skoðunargjald fyrir einbýlis-, par- og raðhús. 43.400

7. gr.

Tímagjald starfsmanns á umhverfissviði vegna annarra/frekari verka (klst.) 18.400.

8. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2., 4. og 5. gr. er áður en byggingarleyfi er útgefið sbr. ákvæði 53. gr. laga um mannvirki.

Gjöld vegna áfangaúttekta skal endurgreiða komi ekki til verkframkvæmda á gildistíma byggingarleyfis.

9. gr.

Mosfellsbær mun annast innheimtu allra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari skv. 51. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010.

Gjöld innheimt samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til greiðslu sannanlegs kostnaðar við einstaka verkþætti gjaldskrárinnar.

Virðisaukaskattur leggst ekki á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

10. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 884. fundi 3. desember 2025 með heimild 51. gr. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1549/2024.

Mosfellsbæ, 3. desember 2025.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025

Tengd mál