Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Útlendingar, Vegabréf
Undirritunardagur
7. apríl 2026
Útgáfudagur
28. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 405/2026
7. apríl 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um vegabréfsáritanir, nr. 795/2022.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 8 við reglugerðina:
- Í stað orðsins „Hvíta-Rússland“ í I. mgr. kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Belarús.
- Í stað orðsins „Kongó“ kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Lýðstjórnarlýðveldið Kongó.
- Á eftir orðinu „Namibía“ í I. mgr. kemur orðið: Naúrú.
- Í stað orðsins „Svasíland“ í I. mgr. kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Esvatíní.
- Við II. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Handhafar diplómatískra vegabréfa, opinberra vegabréfa og þjónustuvegabréfa frá Georgíu.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á I. mgr. viðauka 9 við reglugerðina:
- Í stað orðanna „Georgía (aðeins handhafar vegabréfa með lífkennum)“ kemur: Georgía (aðeins handhafar vegabréfa með lífkennum) en þó ekki handhafar diplómatískra vegabréfa, opinberra vegabréfa og þjónustuvegabréfa frá Georgíu, sbr. II. mgr. viðauka 8.
- Á eftir orðinu „Kósóvó“ kemur: (aðeins handhafar vegabréfa með lífkennum).
- Orðið „Nárú“ fellur brott.
- Í stað orðsins „Austur-Tímor“ kemur, í réttri stafrófsröð, orðið: Tímor-Leste.
3. gr.
Í stað orðanna „þjónustuvegabréfa frá Indlandi“ í 7. tl. II. mgr. viðauka 9 við reglugerðina kemur: opinberra vegabréfa frá Indlandi.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 7. apríl 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 28. apríl 2026