Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Flóahreppur

Undirritunardagur

23. september 2026

Útgáfudagur

8. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1070/2026

23. september 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Flóahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Þingdalur, L166405, úr reiðskemmu í tvær skemmur.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Þingdals, L166405. Í breytingunni felst að heimild til byggingar 1.600 fm reiðskemmu verði skipt upp þannig að heimilt verði að byggja tvær skemmur, annars vegar 1.000 fm og hins vegar 600 fm.

Samþykkt í sveitarstjórn 9. september 2026

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 23. september 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. október 2026

Tengd mál