Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
24. júní 2019
Útgáfudagur
3. júlí 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 67/2019
24. júní 2019
LÖG
um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum (tíðavörur og getnaðarvarnir).
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 14. gr. laganna:
- 11. tölul. orðast svo: Getnaðarvarnir sem falla undir vöruliði nr. 3004, 3006, 3926, 4014 og 9021 í tollskrá.
- Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Tíðavörur sem falla undir vöruliði nr. 3926, 4014, 6211 og 9619 í tollskrá.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 2019.
Gjört á Bessastöðum, 24. júní 2019.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Bjarni Benediktsson.
A deild - Útgáfud.: 3. júlí 2019