Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Loftslagsmál, Fjárfestingar

Undirritunardagur

4. september 2026

Útgáfudagur

18. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1014/2026

4. september 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, nr. 10/2024.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
    2. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/73 frá 4. júlí 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/2178 að því er varðar einföldun á innihaldi og framsetningu upplýsinga sem birta skal varðandi umhverfislega sjálfbæra starfsemi og framseldum reglugerðum (ESB) 2021/2139 og (ESB) 2023/2486 að því er varðar einföldun á tilteknum tæknilegum matsviðmiðum til að ákvarða hvort atvinnustarfsemi valdi engu umtalsverðu tjóni á umhverfismarkmiðum, sem birt er í fylgiskjali 3 með reglugerð þessari.
  2. Við 2. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
    1. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/73 frá 4. júlí 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/2178 að því er varðar einföldun á innihaldi og framsetningu upplýsinga sem birta skal varðandi umhverfislega sjálfbæra starfsemi og framseldum reglugerðum (ESB) 2021/2139 og (ESB) 2023/2486 að því er varðar einföldun á tilteknum tæknilegum matsviðmiðum til að ákvarða hvort atvinnustarfsemi valdi engu umtalsverðu tjóni á umhverfismarkmiðum, sem birt er í fylgiskjali 3 með reglugerð þessari.
  3. Við 3. tölul. bætist: með breytingum skv. 3. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/73 frá 4. júlí 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/2178 að því er varðar einföldun á innihaldi og framsetningu upplýsinga sem birta skal varðandi umhverfislega sjálfbæra starfsemi og framseldum reglugerðum (ESB) 2021/2139 og (ESB) 2023/2486 að því er varðar einföldun á tilteknum tæknilegum matsviðmiðum til að ákvarða hvort atvinnustarfsemi valdi engu umtalsverðu tjóni á umhverfismarkmiðum, sem birt er í fylgiskjali 3 með reglugerð þessari.

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt fylgiskjal sem er birt með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. laga um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, nr. 25/2023, öðlast þegar gildi.

Þrátt fyrir 1. mgr. er fyrirtækjum heimilt að byggja upplýsingagjöf sína á framseldum reglugerðum (ESB) 2021/2178, (ESB) 2021/2139 og (ESB) 2023/2486 eins og þær giltu 31. desember 2025 fyrir fjárhagsárið sem hófst á milli 1. janúar 2025 og 31. desember 2025.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. september 2026.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Arnar Kári Axelsson.

Tengd mál