Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

15. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1368/2025

1. desember 2025

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2025 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:

  1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
  2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2025 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 8,3% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2025. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
  3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2025, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.

Reykjavík, 1. desember 2025.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 15. desember 2025

Tengd mál