Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjanesbær

Málaflokkur

Félagsmál, Húsnæðismál, Reykjanesbær

Undirritunardagur

21. maí 2026

Útgáfudagur

5. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 633/2026

21. maí 2026

REGLUR

Reykjanesbæjar um félagslegt leiguhúsnæði.

I. KAFLIAlmenn ákvæði.

1. gr. Lagagrundvöllur.

Í reglum þessum er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

II. KAFLIUmsóknir og fylgiskjöl.

2. gr. Umsóknir og ráðgjöf.

Sækja skal um félagslegt leiguhúsnæði á vefsíðu Reykjanesbæjar eða í þjónustuveri ráðhúss Reykjanesbæjar. Umsókn skal undirrituð á sérstakt umsóknareyðublað eða staðfest með rafrænum skilríkjum af hálfu umsækjanda eða eftir atvikum lögráðamanni, umboðsmanni eða persónulegum talsmanni hans.

Starfsfólk velferðarsviðs Reykjanesbæjar veitir ráðgjöf og upplýsingar varðandi húsnæðismál.

Heimilt er að leggja fram eina umsókn um eina tegund af félagslegu leiguhúsnæði og tiltekna stærð af húsnæði með tilliti til herbergjafjölda út frá fjölskyldustærð. Í þeim tilfellum þar sem umsækjandi leggur fram aðra umsókn þar sem sótt er um aðra tegund félagslegs leiguhúsnæðis og sú umsókn er samþykkt á biðlista, fellur eldri umsókn sjálfkrafa úr gildi. Ný umsókn heldur þá dagsetningu upphaflegrar umsóknar.

Eigi umsækjandi við virkan vímuefnavanda að stríða, sem að mati ráðgjafa hamlar því að viðkomandi geti búið í almennu félagslegu leiguhúsnæði, er heimilt að synja umsókn hans um almennt félagslegt leiguhúsnæði. Umsækjanda skal þá leiðbeint um að sækja um smáhús fyrir íbúa með miklar og flóknar þjónustuþarfir tengdar geðheilsu sinni og fíknivanda, sbr. 5. gr. reglna þessara. Umsækjanda skal leiðbeint um þau úrræði sem honum standa til boða vegna vímuefnavanda eða annars heilsufarsvanda.

Umsókn verður aðeins samþykkt hafi umsækjandi gert full skil á skuldum við Fasteignir Reykjanesbæjar eða um þær hafi verið samið. Sama gildir um umsókn um íbúðaskipti.

Umsækjanda skal leiðbeint um þau úrræði sem honum standa til boða vegna fjárhagserfiðleika.

Umsækjanda skal tilkynnt skriflega um afgreiðslu umsóknar og hvernig umsókn hans hafi verið metin skv. 2. mgr. 3. gr. reglna þessara.

3. gr. Skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista.

Umsækjandi skal uppfylla öll eftirfarandi skilyrði til að umsókn verði samþykkt á biðlista.

  1. Umsækjandi skal vera orðinn 18 ára á umsóknardegi.
  2. Umsækjandi skal eiga lögheimili í Reykjanesbæ þegar sótt er um.
  3. Umsækjandi skal ekki vera eigandi að húsnæði.
  4. Umsækjandi sé ekki eigandi að opnu VSK númeri eða annars konar fyrirtæki.
  5. Tekjur og eignir umsækjanda fari ekki yfir tekju- og eignamörk Stjórnarráðsins.

Umsóknir skulu metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum um aðstæður umsækjenda.

Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn til að lágmarki eftirfarandi stiga:

  1. Einstaklingur/hjón/sambúðarfólk: Aðstæður umsækjanda verða að vera metnar til 10 stiga eða meira.
  2. Einstaklingur/hjón/sambúðarfólk með eitt barn: Aðstæður umsækjanda verða að vera metnar til 12 stiga eða meira.
  3. Einstaklingur/hjón/sambúðarfólk með tvö börn eða fleiri: Aðstæður umsækjanda verða að vera metnar til 13 stiga eða meira.

4. gr. Fylgigögn með umsókn.

Með undirritun á umsókn um almennt félagslegt leiguhúsnæði er umsækjandi upplýstur um heimild velferðarsviðs Reykjanesbæjar til að afla gagna frá þeim aðilum sem þar eru tilgreindir, svo sem skattyfirvöldum og skuldastöðu hjá Fasteignum Reykjanesbæjar, ef það á við.

Heimilt er að óska eftir ítarlegri upplýsingum og/eða gögnum frá öðrum aðilum á meðan á umsóknarferlinu stendur með samþykki umsækjanda.

Hafi umsækjandi ekki skilað viðeigandi gögnum til velferðarsviðs Reykjanesbæjar innan 30 daga frá umsóknardegi er umsókn synjað.

Þetta gildir þó ekki í þeim tilvikum þegar töf á skilum á gögnum má rekja til annarra aðila en umsækjanda.

Umsóknum um smáhús fyrir íbúa með miklar og flóknar þjónustuþarfir skulu fylgja gögn frá heilbrigðisþjónustu og/eða öðrum þjónustuaðilum, eftir því sem við á.

III. KAFLIForgangsröðun og úthlutun.

5. gr. Forgangsröðun.

Fullnægi umsækjandi skilyrðum 3. gr. reglna þessara raðast umsóknir í forgangsröð með hliðsjón af faglegu mati ráðgjafa og úthlutunarhóps, ásamt aldri umsóknar og niðurstöðu stigagjafar samkvæmt matsviðmiðum velferðarsviðs um aðstæður umsækjenda.

6. gr. Stærð og gerð íbúða.

Við mat á stærð og gerð íbúða sem koma til úthlutunar er höfð hliðsjón af fjölskyldustærð umsækjanda og öðrum aðstæðum sem máli kunna að skipta.

Sama gildir um umsóknir um íbúðaskipti.

7. gr. Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis.

Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis fer fram á sérstökum fundum úthlutunarhóps velferðarsviðs Reykjanesbæjar um félagslegt leiguhúsnæði.

Uppfylli umsækjandi ekki lengur skilyrði 3. gr. reglna þessara á meðan beðið er úthlutunar í félagslegt leiguhúsnæði, er heimilt að afturkalla stjórnvaldsákvörðun um samþykki á biðlista, sbr. 11. gr. reglna þessara. Sama gildir ef eigi er farið að ákvæðum húsaleigulaga, nr. 36/1994, eða ákvæðum leigusamnings um viðkomandi leiguhúsnæði.

Úthlutunarhópur félagslegs leiguhúsnæðis forgangsraðar umsóknum Reykjanesbæjar og úthlutar húsnæði samkvæmt reglum þessum. Forgangsröðun tekur mið af faglegu mati ráðgjafa og úthlutunarhóps ásamt stigagjöf samkvæmt matsviðmiðum reglna þessara. Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis byggir á gögnum sem liggja fyrir á úthlutunardegi.

Ákvörðun um úthlutun er stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Um er að ræða skilyrta stjórnvaldsákvörðun þar sem gert er að skilyrði að umsækjandi uppfylli reglur Reykjanesbæjar um félagslegt leiguhúsnæði, fari að þeim ákvæðum sem gilda samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og ákvæðum leigusamnings um viðkomandi leiguhúsnæði og eftir atvikum þjónustusamningi, þegar svo ber undir.

8. gr. Íbúðaskipti.

Óski leigutaki eftir flutningi úr félagslegu leiguhúsnæði í annað félagslegt leiguhúsnæði, skal hann senda rafræna umsókn eða leggja fram skriflega umsókn á sérstöku eyðublaði í ráðhúsi Reykjanesbæjar.

Umsækjandi skal eftir atvikum fullnægja skilyrðum 3. gr. reglna þessara. Heimilt er að óska eftir íbúðaskiptum þegar þrjú ár eru liðin frá síðustu úthlutun.

Umsækjendur um íbúðaskipti geta sótt um undanþágu frá framangreindu skilyrði um að hafa búið í þrjú ár í núverandi félagslegu leiguhúsnæði, séu veigamiklar ástæður fyrir flutningi, s.s. alvarlegur heilsubrestur eða mikil vandkvæði bundin við núverandi búsetu.

Umsóknir um undanþágur samkvæmt ákvæði þessu skulu afgreiddar hjá velferðarsviði Reykjanesbæjar. Fullnægi umsækjandi eftir atvikum skilyrðum 3. gr. reglna þessara raðast umsóknir um íbúðaskipti í forgangsröð með hliðsjón af faglegu mati ráðgjafa og úthlutunarhóps ásamt stigagjöf samkvæmt matsviðmiðum. Um íbúðaskipti gilda eftir atvikum þau matsviðmið sem notuð eru þegar sótt er um félagslegt leiguhúsnæði.

Umsækjanda skal tilkynnt skriflega um hvort umsókn hans um íbúðaskipti hafi verið samþykkt á biðlista og hvernig umsókn hans hafi verið metin samkvæmt matsviðmiðum með reglum þessum. Þá skal umsækjanda gerð grein fyrir nauðsyn endurnýjunar umsóknar, sbr. 16. gr. reglna þessara.

9. gr. Tilkynning um úthlutun og höfnun leiguíbúðar.

Velferðarsvið tilkynnir umsækjanda skriflega þegar úthlutun til hans hefur farið fram.

Í kjölfarið hafa Fasteignir Reykjanesbæjar samband við viðkomandi og bjóða skoðun á íbúðinni.

Umsækjanda er veittur sjö daga frestur frá því að upplýst hefur verið um úthlutun og fram að því að hann svarar því hvort hann þiggi úthlutun íbúðar eða ekki, undanþága er veitt ef frestun á skoðun íbúðar er af völdum Reykjanesbæjar eða Fasteigna Reykjanesbæjar.

Ef svar berst ekki innan framangreinds frests er litið svo á að umsækjandi hafni úthlutun.

IV. KAFLILeigusamningar.

10. gr. Leigusamningar.

Velferðarsvið Reykjanesbæjar annast frágang leigusamninga vegna félagslegs leiguhúsnæðis og um þá gilda ákvæði húsaleigulaga, nr. 36/1994.

Um réttarsamband leigutaka og Fasteigna Reykjanesbæjar eða eftir atvikum Reykjanesbæjar, gilda ákvæði húsaleigulaga, nr. 36/1994, og ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Að jafnaði eru gerðir ótímabundnir leigusamningar vegna félagslegs leiguhúsnæðis.

Leigutaki í smáhúsum fyrir íbúa með miklar og flóknar þjónustuþarfir fær tímabundna leigusamninga. Þjónustusamningar eru grundvöllur þeirra leigusamninga. Uppsögn á þjónustusamningi samsvarar uppsögn á húsaleigusamningi.

Upphæð húsaleigu fylgir vísitölu neysluverðs. Ákvörðun um breytingu umfram þá hækkun er ákvörðuð af Fasteignum Reykjanesbæjar eða eftir atvikum Reykjanesbæ.

Leigutaki félagslegs leiguhúsnæðis verður að fullnægja, eftir atvikum, skilyrðum 3. gr. reglna þessara allt það tímabil sem leigusamningur gildir og skal hann eiga lögheimili í leiguhúsnæðinu óslitið á leigutíma.

Óheimilt er að framleigja félagslegt leiguhúsnæði sem hefur verið úthlutað til viðkomandi.

Innheimta leigugjalds, umsjón og viðhald leiguíbúða er á vegum Fasteigna Reykjanesbæjar eða eftir atvikum á vegum Reykjanesbæjar.

V. KAFLIAfturköllun stjórnvaldsákvörðunar.

11. gr. Afturköllun stjórnvaldsákvörðunar um samþykkt á biðlista.

Réttur Reykjanesbæjar til afturköllunar ákvörðunar um samþykkt á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði er bundinn við þau tilvik þegar umsækjandi uppfyllir ekki lengur skilyrði 3. gr. reglna þessara.

Afturköllun ákvörðunar um samþykkt á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði er stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

12. gr. Afturköllun stjórnvaldsákvörðunar um úthlutun húsnæðis.

Réttur Reykjanesbæjar til afturköllunar ákvörðunar um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis er bundinn við þau tilvik þegar leigutaki uppfyllir ekki skilyrði reglna þessara, eða brýtur gegn ákvæðum leigusamnings, þjónustusamnings eða ákvæðum húsaleigulaga, nr. 36/1994.

Afturköllun ákvörðunar um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis er stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Afturköllun ákvörðunar um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis getur eftir atvikum leitt til uppsagnar eða riftunar á húsaleigusamningi. Um uppsögn og riftun gilda ákvæði húsaleigulaga, nr. 36/1994.

VI. KAFLILok leigusamnings, afnot, ábyrgð leigutaka, endurnýjun umsókna og ráðgjöf.

13. gr. Breyttar aðstæður.

Umsækjandi skal vera í tengslum við velferðarsvið Reykjanesbæjar á meðan beðið er úthlutunar á húsnæði og gera grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á aðstæðum hans og hafa áhrif á fyrirliggjandi mat.

Leigutaki skal upplýsa velferðarsvið Reykjanesbæjar verði breytingar á aðstæðum hans sem áhrif kunna að hafa á hvort skilyrðum 3. gr. reglna þessara sé fullnægt.

Ef leigutaki gengur í hjúskap, hefur sambúð eða aðstæður hans breytast með öðrum hætti á leigutímanum, skal hann tilkynna velferðarsviði Reykjanesbæjar þar um, enda forsendur aðrar en þegar að úthlutun kom. Kanna skal reglulega hvort aðstæður leigutaka hafi breyst samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá.

Hafi aðstæður leigutaka breyst skal hafa samband við hann og eftir atvikum kanna félagslegar og fjárhagslegar aðstæður í heild sinni og meta að nýju. Ef félagslegar aðstæður leigutaka eða fjárhagsaðstæður falla eigi lengur að skilyrðum reglna þessara leiðir það til afturköllunar á stjórnvaldsákvörðun um úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði.

Leigutaki félagslegs leiguhúsnæðis skal eiga lögheimili í leiguhúsnæðinu óslitið á leigutíma.

14. gr. Afnot húsnæðis.

Leigutaka er óheimilt að heimila öðrum afnot af hinu leigða húsnæði. Ákvæðinu er þó ekki ætlað að koma í veg fyrir að leigutaki heimili fjölskyldumeðlimum, s.s. afkomendum eldri en 18 ára, foreldrum eða systkinum leigutaka, að dvelja í íbúð með sér til skemmri tíma.

Börnum leigutaka, sem búsett eru hjá honum og ná 18 ára aldri eftir úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis, er heimilt að vera áfram búsett hjá leigutaka eftir að 18 ára aldri er náð.

Framleiga félagslegs leiguhúsnæðis er með öllu óheimil. Verði leigutaki uppvís að því að framleigja félagslegt leiguhúsnæði eða heimila öðrum afnot af því getur það leitt til afturköllunar á stjórnvaldsákvörðun varðandi úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði.

Dveljist leigutaki lengur en sex mánuði á hjúkrunarheimili, eða sambærilegri stofnun, ber honum að skila leiguíbúð sinni.

15. gr. Ábyrgð á leiguhúsnæði.

Leigutaki ber óskipta bótaábyrgð gagnvart Fasteignum Reykjanesbæjar eða eftir atvikum Reykjanesbæ, eftir því sem við á, á allri rýrnun húsnæðisins eða spjöllum á því, umfram það sem eðlilegt getur talist, sbr. ákvæði XIII. kafla húsaleigulaga, nr. 36/1994. Fasteignir Reykjanesbæjar eða Reykjanesbær krefja leigutaka um greiðslu vegna tjóns sem unnið var á húsnæðinu á meðan á leigutíma stóð.

16. gr. Endurnýjun og endurmat umsókna.

Ef viðhalda á gildi umsóknar um félagslegt leiguhúsnæði eða íbúðaskipti skal umsækjandi endurnýja umsókn sína innan 12 mánaða frá umsóknardegi og síðan á a.m.k. 12 mánaða fresti frá þeim degi. Endurnýjun skal vera skrifleg eða með rafrænum hætti. Sé umsókn ekki endurnýjuð innan 12 mánaða fellur hún úr gildi.

Við endurnýjun umsóknar, eða hvenær sem er á biðtíma, getur farið fram endurmat á hvort skilyrðum 3. gr. reglna þessara sé fullnægt.

Endurmat umsóknar getur falið í sér breytingar á stigagjöf sem geta haft áhrif á forgangsröðun umsóknar. Þá getur endurmat leitt til afturköllunar ákvörðunar um að umsókn sé samþykkt á biðlista. Skal umsækjanda tilkynnt skriflega um ef endurnýjun leiðir til breytinga á mati umsóknar.

17. gr. Ráðgjöf á biðtíma.

Velferðarsvið Reykjanesbæjar endurmetur aðstæður umsækjanda á meðan beðið er úthlutunar á húsnæði og veitir félagslega ráðgjöf ef þurfa þykir.

VII. KAFLIMálsmeðferð.

18. gr. Málsmeðferð.

Málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og ákvæði XVI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

19. gr. Könnun á aðstæðum.

Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um félagslegt leiguhúsnæði hefur verið samþykkt á biðlista, þ.e. skilyrði lögheimilis og tekju- og eignaviðmiða eru uppfyllt.

Velferðarsvið Reykjanesbæjar skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Umsækjandi sem hefur fengið umsókn sína um félagslegt leiguhúsnæði samþykkta er boðaður í viðtal þar sem farið er yfir matsviðmið með umsækjanda.

Uppfæra ber öll gögn miðað við stöðu umsækjanda á þeim tíma. Einnig ber eftir atvikum að framkvæma endurmat samkvæmt matsviðmiðum. Skal umsækjanda tilkynnt skriflega um ef endurmat leiðir til breytinga á stigagjöf.

20. gr. Endurskoðun.

Rétt til félagslegs leiguhúsnæðis má endurskoða hvenær sem er. Meta skal hvort leigutaki félagslegs leiguhúsnæðis fullnægi skilyrðum reglna þessara og hvort breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annars heimilisfólks, sbr. 13. gr. reglna þessara, hafi áhrif á rétt hans.

21. gr. Rangar eða villandi upplýsingar.

Ef sannreynt er við meðferð máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi, stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri á að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.

Ef umsókn um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis er lögð fram á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hálfu umsækjanda veldur það ógildi umsóknar eða getur leitt til afturköllunar ákvörðunar.

22. gr. Samvinna við umsækjanda.

Við meðferð umsóknar, öflun gagna og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en að öðrum kosti við umboðsmann hans, lögráðamann eða persónulegan talsmann, eftir því sem við á.

Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.

23. gr. Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.

Málsgögn er varða persónulega hagi umsækjenda skulu varðveitt á öruggan hátt í samræmi við lög um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, skjalavistunaráætlanir og reglur Reykjanesbæjar.

Starfsfólk er bundið þagnarskyldu um málefni umsækjanda er leynt eiga að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Starfsfólki er óheimilt að miðla persónulegum upplýsingum nema að fengnu samþykki viðkomandi. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

Umsækjandi getur óskað eftir aðgangi að fyrirliggjandi gögnum er varða hann sjálfan. Við mat á því hvaða gögnum verður miðlað skal meðal annars litið til ákvæða persónuverndarlaga, upplýsingalaga auk annarra laga og reglna sem kunna að eiga við hverju sinni. Vinnsla mála og varðveisla gagna byggist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.

Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu Reykjanesbæjar sem aðgengileg er á vefsíðu sveitarfélagsins.

24. gr. Samráð velferðarsviðs Reykjanesbæjar og Fasteigna Reykjanesbæjar.

Fasteignum Reykjanesbæjar er heimilt að upplýsa velferðarsvið Reykjanesbæjar um vanskil á húsaleigu, brot á húsreglum, áminningar og riftun húsaleigusamnings.

Þá er velferðarsviði Reykjanesbæjar jafnframt heimilt að upplýsa Fasteignir Reykjanesbæjar um afmarkaða þætti málsmeðferðar sem snúa að samningsumleitan vegna húsaleiguskulda og atvika er varða stuðning vegna áframhaldandi búsetu.

25. gr. Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.

Velferðarsvið Reykjanesbæjar tekur ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði velferðarráðs Reykjanesbæjar.

26. gr. Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.

Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað skal umsækjandi fá svar þar sem vísað er með skýrum hætti til viðeigandi ákvæða reglna þessara og leiðbeint um heimild til að óska rökstuðnings fyrir synjun.

Upplýsa skal umsækjanda um rétt hans til að fara fram á að áfrýjunarnefnd velferðarráðs fjalli um umsóknina en slík beiðni skal berast áfrýjunarnefnd velferðarráðs innan fjögurra vikna frá því að umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun.

27. gr. Heimild áfrýjunarnefndar Reykjanesbæjar
til að veita undanþágu frá reglum þessum.

Um áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar gilda reglur þar að lútandi sem byggja á 3. mgr. 6. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjanesbæjar hefur heimild til að veita undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir og umsækjandi fer fram á það með sérstakri beiðni til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar innan fjögurra vikna frá því honum barst vitneskja um ákvörðun.

Umsóknir um undanþágur skulu vera skriflegar þar sem gerð er grein fyrir ástæðu undanþágubeiðni.

Ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs skal kynnt umsækjanda og um leið skal honum kynntur réttur til málskots til úrskurðarnefndar velferðarmála.

28. gr. Kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Umsækjandi getur kært ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda var kunngerð ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs.

29. gr. Gildistaka.

Reglur þessar kveða á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita og eru settar með stoð í XII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og 4. tl. 2. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

Reglur þessar taka þegar gildi. Jafnframt falla brott óbirtar reglur Reykjanesbæjar um félagslegt leiguhúsnæði.

Samþykkt af velferðarráði Reykjanesbæjar 11. desember 2025.

Staðfest af bæjarstjórn 16. desember 2025.

Reykjanesbæ, 21. maí 2026.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 5. júní 2026

Tengd mál