Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Upplýsingar

Undirritunardagur

4. september 2026

Útgáfudagur

22. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1022/2026

4. september 2026

AUGLÝSING

um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að Farice ehf. skuli ekki falla undir gildissvið laganna. Skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 4. september 2029.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 4. september 2026.

Kristrún Frostadóttir.

Benedikt Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 22. september 2026

Tengd mál