Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar

Undirritunardagur

7. júlí 2026

Útgáfudagur

16. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 816/2026

7. júlí 2026

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1495/2025 um greiðsluþátttöku sjúkratryggða í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við bætist nýr töluliður, 6. tölul., svohljóðandi: 6. Greiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. vegna komugjalds fyrir þjálfun.
  2. Í stað orðanna „33. gr.“ í 7. tölul. kemur: 1. mgr. 33. gr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar „500 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 1.000 kr.
  2. Í stað orðanna „sjúkratryggðir almennt greiða 500 kr.“ í 4. mgr. kemur: sjúkratryggðir almennt greiða gjald skv. 1. tölul. 1. mgr.

3. gr.

Í stað fjárhæðarinnar „3.100 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 3.500 kr.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar „3.400 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „4.500 kr.“ í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 5.000 kr.

5. gr.

Í stað orðanna „Sjúkratryggðir greiða 500 kr.“ í 8. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar kemur: Sjúkratryggðir greiða gjald skv. 1. tölul. 1. mgr. 8. gr.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Auk greiðslna samkvæmt 1. mgr. skulu sjúkratryggðir greiða komugjald sem falla ekki í afsláttarstofn, sbr. 5. gr., fyrir þjálfun sem hér segir:
    1. Sjúkratryggðir almennt, 1.500 kr.
    2. Aldraðir, 1.000 kr.
    3. Öryrkjar, 500 kr.
    4. Börn greiða ekkert gjald.
    Heildargreiðslur sjúkratryggðra verða þó ekki meira en 100% af umsömdu heildarverði.

7. gr.

Í stað fjárhæðarinnar „500 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.000 kr.

8. gr.

Við 33. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þegar ekki er um sjúkraflutning að ræða greiða sjúkratryggðir gjald fyrir komu í sjúkrabifreið, sem ekki var sérstaklega kölluð til vegna þeirra, samkvæmt 8. og 9. gr.

9. gr.Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, sbr. 17. gr., 18. gr. og 21. gr. sömu laga og 38. gr. laga um heilbrigðisþjónustu,  nr. 40/2007, öðlast gildi 1. september 2026.

Heilbrigðisráðuneytinu, 7. júlí 2026.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Guðríður Bolladóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. júlí 2026

Tengd mál