Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Byggingarmál, Mannvirki, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
5. október 2023
Útgáfudagur
12. desember 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1353/2023
5. október 2023
GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:
1. gr. Byggingarleyfisgjald.
Innheimt skal eftirfarandi byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir, sbr. 51. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki. Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingarleyfisskyldra erinda, lóðarblöð, yfirferð teikninga, útsetning húss og reglubundið eftirlit eftir því sem við á.
| Flokkur A: Íbúðarhúsnæði: | |
| Einbýlishús | 233.090 kr. |
| Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús, gjald á hverja íbúð | 198.140 kr. |
| Fjölbýlishús, gjald á hverja íbúð | 116.550 kr. |
| Frístundahús | 116.550 kr. |
| Flokkur B: Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði: | |
| Gólfflötur allt að 500 fermetrar | 233.090 kr. |
| Gólfflötur á bilinu 500-1.000 fermetrar | 466.190 kr. |
| Gólfflötur yfir 1.000 fermetrum | 699.280 kr. |
| Flokkur C: Önnur hús, hvers konar viðbyggingar, bílageymslu- og gripahús: | |
| Nýbygging eða viðbygging allt að 40 fermetrar | 93.240 kr. |
| Nýbygging eða viðbygging frá 40-100 fermetrum | 139.860 kr. |
| Nýbygging eða viðbygging yfir 100 fermetrum | 233.090 kr. |
| Flokkur D: Annað: | |
| Minniháttar breytingar á útliti, innra skipulagi, klæðningu utanhúss o.þ.h. | 46.620 kr. |
| Meiriháttar breytingar á innra skipulagi húsnæðis, s.s. veggjum, lögnum o.þ.h. | 116.550 kr. |
2. gr. Leyfisgjöld.
| Stöðuleyfi hjólhýsa, báta og annarra muna skv. 1. gr. reglna Ísafjarðarbæjar um útgáfu stöðuleyfa (árgjald) | 29.650 kr. |
| Stöðuleyfi gáma (árgjald) | 54.030 kr. |
| Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðahafa | 18.830 kr. |
| Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs | 26.570 kr. |
| Afgreiðslugjald byggingarfulltrúa | 13.840 kr. |
| Úttekt vegna meistaraskipta | 14.120 kr. |
| Úttekt vegna byggingarstjóraskipta | 58.120 kr. |
| Lóðagjald | 41.520 kr. |
| Yfirferð aðaluppdrátta | 36.950 kr. |
| Tímavinnugjald við gerð úttekta vegna meistara- og byggingarstjóraskipta, sbr. 4. gr. gjaldskrárinnar | 22.010 kr. |
| Endurnýjun byggingarleyfis | 13.840 kr. |
| Leyfi til niðurrifs mannvirkja | 35.290 kr. |
| Breyting á skráningu, sbr. 5. gr. gjaldskrárinnar | 35.990 kr. |
3. gr. Vottorð.
| Byggingarstig húsa | 34.090 kr. |
| Afgreiðsla skráningartöflu | 37.060 kr. |
| Afgreiðsla eignaskiptayfirlýsinga, gjald á eignarhlut | 56.250 kr. |
4. gr. Tímavinnugjald byggingarfulltrúa.
Af viðameiri framkvæmdum er heimilt að innheimta tímavinnugjald af þeirri vinnu sem lagt er út í við gerð úttekta vegna meistara- og byggingarstjóraskipta.
5. gr. Kostnaður skoðunarstofu.
Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við meðferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
6. gr. Samþykkt og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki, með síðari breytingum.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2024 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1342/2022.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 5. október 2023.
Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 12. desember 2023