Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

8. desember 2021

Útgáfudagur

22. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1489/2021

8. desember 2021

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2022.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2021, álagningarárið 2022, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

kr.
Mjólkurkýr 133.000
Holdakýr og naut 130.000
Kvígur, 1½ árs og eldri 130.000
Geldneyti 75.000
Kálfar, yngri en ½ árs 14.000
Ær og sauðir 6.500
Hrútar 17.000
Gemlingar 9.500
Geitur 10.000
Hross á 14. vetri og eldri 19.000
Hross á 5. – 13. vetri 40.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 190.000
Önnur nýtanleg reiðhross 105.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 290.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 390.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 500.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 13.000
Folöld 9.300
Hænsni, eldri en 6 mánaða 945
Varphænsni 6 mánaða og yngri 640
Kjúklingar 260
Endur 910
Gæsir 1.825
Kalkúnar 2.735
Gyltur 42.000
Geltir 62.000
Grísir 12.000
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr 6.000
Kvendýr 4.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

Reykjavík, 8. desember 2021.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2021

Tengd mál