Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Akraneskaupstaður

Málaflokkur

Sorphreinsun, Akranes

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

30. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1502/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir meðhöndlun úrgangs í Akraneskaupstað.

1. gr.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar skal ákvarða og innheimta gjöld vegna hirðu og meðhöndlunar úrgangs, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Þá er Akraneskaupstað heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.

2. gr.

Gjöld vegna hirðu og meðhöndlunar úrgangs eru lögð á hverja íbúð á Akranesi og eru þau innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Gjöldin njóta lögveðsréttar í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga.

3. gr.

Skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar er heimilt samkvæmt gjaldskrá þessari að leggja gjöld á þá aðila sem verða uppvísir að því að fleygja úrgangi á víðavangi fyrir útlögðum kostnaði við hreinsun.

4. gr.

Gjald fyrir rekstur söfnunarstöðvar Gámu, grenndarstöðva og hluti af kostnaði við losun úrgangs á söfnunarstöð Gámu er 20.500 kr. á hverja íbúð. Kostnaður við losun úrgangs á söfnunarstöð Gámu er greiddur eftir gjaldskrá rekstraraðila.

5. gr.

Íbúum býðst að fá afsláttarkort (klippikort) á rafrænu formi með appi í síma sinn og nota til greiðslu fyrir losun á gjaldskyldum úrgangi í Gámu á árinu. Hver íbúð fær 12 klipp árlega í appið og er kostnaður við kortin innifalinn í gjaldi skv. 4. gr. Ónotuð klipp falla niður um næstu áramót. Hvert klipp jafngildir greiðslu fyrir losun á 0,25 m³ einingu af gjaldskyldum heimilisúrgangi. Einnig býðst íbúum að kaupa aukalega áfyllingu í appið í samræmi við gjaldskrá.

6. gr.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, flutnings og skráningar íláta er 7.000 kr. fyrir hvert skipti sem óskað er breytinga.

7. gr.

Heimilum er skylt að flokka úrgang í þá flokka sem tilgreindir eru í 10. gr. laga nr. 55/2003.

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endurvinnslu úrgangs. Gjaldi fyrir djúpgáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun eða endurvinnslu.

Gjöld ákvarðast út frá rúmmáli þeirra íláta sem eru við heimili og eru gjöldin sem hér segir:

Fl. Nr. Úrgangsflokkur Ílát l Árgjald kr.
1   Blandaður úrgangur    
  1 Blandaður úrgangur 240 24.000
  2 Blandaður úrgangur 360 36.000
  3 Blandaður úrgangur 660 65.500
  6 Blandaður úrgangur 5.000 350.000
2   Matarleifar    
  1 Matarleifar 140 25.500
  4 Matarleifar 5.000 500.000
3   Matarleifar/Blandað    
  1 Tvískipt ílát 240 39.500
4   Pappi og pappír    
  1 Pappi og pappír 240 3.000
  2 Pappi og pappír 360 5.000
  3 Pappi og pappír 660 9.000
  5 Pappi og pappír 5.000 100.000
5   Plastumbúðir    
  1 Plastumbúðir 240 3.000
  2 Plastumbúðir 360 5.000
  3 Plastumbúðir 660 9.000
  6 Plastumbúðir 5.000 100.000
6   Klippikort    
  1 8 klippa áfylling 2 m³ 13.000
  2 16 klippa áfylling 4 m³ 25.000

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, staðfestist hér með skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og skv. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1657/2024.

Gjaldskráin var samþykkt af bæjarstjórn Akraness 9. desember 2025.

Akranesi, 16. desember 2025.

Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025

Tengd mál