Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla
Undirritunardagur
19. júní 2025
Útgáfudagur
3. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 757/2025
19. júní 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar vegna áforma um fjölgun íbúða í Ölkeldudal.
Skipulagsstofnun staðfesti 19. júní 2025 breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 sem samþykkt var í bæjarstjórn 10. apríl 2025.
Í breytingunni felst að íbúðarbyggð ÍB-5 í Ölkeldudal stækkar um 0,3 ha, opið svæði OP-3 minnkar um 0,5 ha, samfélagsþjónusta S-3 stækkar um 0,4 ha, afþreyingar- og ferðamannasvæði AF-2 stækkar um 0,2 ha, íþróttasvæði ÍÞ-5 minnkar um 0,6 ha og opið svæði OP-5 stækkar um 0,1 ha. Breytingin er gerð í tengslum við heildarendurskoðun deiliskipulags á öllu svæðinu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 19. júní 2025.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 3. júlí 2025