Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
22. desember 2022
Útgáfudagur
29. desember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1538/2022
22. desember 2022
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2023.
Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Tekjuskattshlutfall á árinu 2023 verður 16,78% af tekjuskattsstofni að 4.919.833 kr., 23,28% af tekjuskattsstofni frá 4.919.834 kr. að 13.812.143 kr. og 31,58% af tekjuskattsstofni frá 13.812.144 kr. Meðalútsvar á árinu 2023 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,67%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2023 verður því 31,45% af tekjuskattsstofni að 4.919.833 kr., eða að 409.986 kr. að meðaltali á mánuði, 37,95% af tekjuskattsstofni frá 4.919.834 kr. að 13.812.143 kr., eða frá 409.987 kr. að 1.151.012 kr. að meðaltali á mánuði og 46,25% af tekjuskattsstofni frá 13.812.144 kr., eða frá 1.151.013 kr. að meðaltali á mánuði.
Samkvæmt A-lið 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2023 vera 715.981 kr., eða 59.665 kr. að meðaltali á mánuði.
Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, skal skattfrelsismark erfðafjárskatts í skattstofni dánarbús á árinu 2023 vera 5.757.759 kr.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2022.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022