Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
6. maí 2026
Útgáfudagur
21. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 531/2026
6. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna Súluholtshjáleigu, nýs efnistöku- og efnislosunarsvæðis E24.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 6. maí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. febrúar 2026.
Í breytingunni felst nýtt efnistöku- og efnislosunarsvæði E24 á jörðinni Súluholtshjáleigu, þar sem heimilað verður að vinna allt að 48.000 m³ af efni á 1,7 ha svæði og losa jarðveg í námuna vegna vegagerðar við nýja Ölfusárbrú.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 6. maí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 21. maí 2026