Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus
Undirritunardagur
21. maí 2026
Útgáfudagur
5. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 634/2026
21. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna samfélagsþjónustu og verslunar og þjónustu í Árbæjarhverfi.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 21. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. febrúar 2026.
Breytingin felur í sér skilgreiningu á um 3 ha verslunar- og þjónustusvæði (VÞ28) í Árbæ fyrir frekari uppbyggingu með tengingu við þjóðveg. Einnig er skilgreint um 3 ha samfélagsþjónustusvæði (S18) fyrir nýjan dýraspítala, þar sem núverandi dýraspítali á S17 verður nýttur sem endurhæfingarstöð. Verslunar- og þjónustusvæði VÞ27 og landbúnaðarland minnka sem þessu nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. maí 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 5. júní 2026