Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Þingeyjarsýslur
Undirritunardagur
6. maí 2026
Útgáfudagur
7. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 454/2026
6. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna rammahluta um þróun byggðar í Vaðlaheiði.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 6. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 24. júní 2025.
Í breytingunni felst að mörkuð er heildstæð stefna um þróun byggðar í Vaðlaheiði á um 1.090 ha svæði. Rammahlutinn tekur til landsvæða innan sveitarfélagamarka Svalbarðsstrandarhrepps og Eyjafjarðarsveitar.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 6. maí 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 7. maí 2026