Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

16. ágúst 2024

Útgáfudagur

30. ágúst 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 982/2024

16. ágúst 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 1202/2016, um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga.

1. gr.

3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Hafi starfsmaður hlotið samþykki nefndarinnar og verið viðurkenndur sem sérfræðingur er honum heimilt að skipta um starf innan þess þriggja ára tímabils sem frádráttarheimild hefði að óbreyttu tekið til, sbr. upphafsmálslið 1. mgr. 6. tölul. A-liðar 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, enda hafi hann endurnýjað umsókn sína og hafið störf innan þriggja mánaða frá lokum fyrra starfs. Starf telst hafið að nýju þegar skipt er um starf frá einum lögaðila til annars, sem starfar undir sjálfstæðri kennitölu, þrátt fyrir að um sé að ræða t.d. félög í eigu upphaflegs eða fyrri vinnuveitanda, sbr. a-lið 3. mgr. 2. gr. Umsókn sem berst að liðnum þremur mánuðum frá upphafi nýs starfs verður hafnað og jafnframt fellur frádráttur niður við lok fyrra starfstímabils. Endurnýjuð umsókn gildir að óbreyttum starfstíma til upphaflegs þriggja ára tímabils. Ákvæði reglugerðar þessarar taka að öðru leyti til endurnýjunar á umsókn að frátöldum a-lið 2. mgr. 2. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 16. ágúst 2024.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. ágúst 2024

Tengd mál