Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Mosfellsbær

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

19. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1688/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

Hitaveitu Mosfellsbæjar.

I. KAFLI

1. gr.

Hitaveita Mosfellsbæjar selur afnot af heitu vatni úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða verða gerð í Mosfellsbæ og til þeirra húsa, sem fá vatn frá aðfærsluæð, eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari samanber reglugerð fyrir Hitaveitu Mosfellsbæjar.

2. gr.

Hitaveita Mosfellsbæjar lætur hverju húsi, sem er í sambandi við kerfi hennar, í té vatnsmagn er áætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi veitunnar.

3. gr.

Vatnsmagn það, sem látið er í té samkvæmt 1. og 2. gr., er afhent notanda um rennslismæli sem hitaveitan leggur til og annast viðhald á. Mælir þessi skal innsiglaður og er húseiganda/notanda með öllu óheimilt að rjúfa innsigli mælisins.

II. KAFLI

4. gr.

1. Gjald fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:

Heitt vatn um rennslismæli: Kr. 2% skattur Með 11% skatti Grunnur
A. Fyrir hvern rúmmetra vatns 142,25 2,85 161,06 kr./m³

2. Mælaleiga:

Auk þess greiðist fastagjald árlega háð afköstum rennslismælisins en óháð töxtum að öðru leyti.

Því er skipt í þrjá flokka: Kr./dag 2% skattur Með 11% skatti Grunnur
A. 15-20 mm 61,86 1,24 70,04 kr./dag
B. 25-50 mm 138,61 2,77 156,93 kr./dag
C. 65 mm og stærri 259,30 5,19 293,58 kr./dag

3. Sérstakir notendur:

Sérstakir notendur greiða fyrir afnot af heita vatninu sem hér segir:

Notandi Kr./m³ Athugasemdir 2% skattur Með 11% skatti Grunnur
A. Almennings­sundlaugar 46,35 Gildir fyrir almennings­sundlaugar og sambyggð íþróttamannvirki í eigu sveitar­félagsins. Með í taxtanum telst baðvatn og vatn til set- og vaðlauga 0,93 52,47 kr./m³
B. Sundlaugar stofnana 79,73 Til þessa flokks teljast sundlaugar sem reknar eru af stofnunum sem ekki eru í beinni eigu sveitar­félagsins. Með í taxtanum telst baðvatn og vatn til set- og vaðlauga 1,59 90,27 kr./m³
C. Gróðurhús 62,38 Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni 1,25 70,63 kr./m³
D. Vatnsverð án flutnings­gjalda 105,94   2,12 119,94 kr./m³
E. Upphitaðir íþróttavellir utandyra 122,27   2,45 138,43 kr./m³
F. Iðnaðarvatn í framleiðslu­ferla 100,75   2,01 114,06 kr./m³

Taxtinn gildir fyrir þá aðila sem eiga heimæðar sínar og sjá um rekstur þeirra og viðhald á eigin kostnað. Mælir er þá staðsettur veitumegin við heimæðina. Mælagjaldinu er dreift jafnt niður á fjölda reikningstímabila eins og þau eru ákveðin hverju sinni.

4. Innheimtuviðvörun:

Ef til vanskila kemur bætist við gjald vegna innheimtuviðvörunar, 20 dögum eftir gjalddaga. Innheimtugjöld miðast við heimildir í reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar. Gjald vegna innheimtuviðvörunar er kr. 950 án vsk.

5. gr.

Fjöldi reikningstímabila, sem þó skulu eigi vera færri en fjögur á ári, og innheimtutilhögun hitaveitugjalda hverju sinni, sbr. 4. gr., skulu ákveðin af bæjarstjóra. Það teljast vanskil sé reikningur ekki greiddur á gjalddaga.

Hitaveita Mosfellsbæjar skal tilkynna notendum sínum með hæfilegum fyrirvara ef hún ákveður að breyta fjölda reikningstímabila hitaveitureikninga og skal jafnan miða við að breytingar á gjaldskrá taki gildi við upphaf hvers reikningstímabils til að auðvelda notendum úrlestur hitaveitureikninga og hitaveitunni álagningu þeirra.

III. KAFLI

6. gr.

Almennt verð heimæða gildir á nýbyggingarsvæðum þar sem inntaksrými er samkvæmt skilmálum. Verðið gildir ekki þar sem gengið hefur verið varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðamörkum, en þar greiðir umsækjandi til samræmis við kostnaðaráætlun. Geri húseigandi eða lóðarhafi breytingar á skipulagi fasteignar frá útgefnu skipulagi sveitarfélagsins, ber hann að auki allan kostnað við færslu eða breytingar veitulagna og inntaksbúnaðar á inntaksstað.

Heimæðagjald Hitaveitu Mosfellsbæjar skal vera sem hér segir, fyrir eina heimæð:

Sverleiki pípu Upphæð án vsk Með 11% vsk Með 24% vsk Grunnur
DN20 (25 mm PEX) 223.700 248.307 277.388 kr./stk.
DN25 (32 mm PEX) 425.600 472.416 527.744 kr./stk.
DN32 (40 mm PEX) 639.100 709.401 792.484 kr./stk.
DN40 (50 mm PEX) 1.307.000 1.450.770 1.620.680 kr./stk.
DN50 (63 mm PEX) 2.118.600 2.351.646 2.627.064 kr./stk.
DN65 (75 mm PEX) 4.234.800 4.700.628 5.251.152 kr./stk.
DN80 (90 mm PEX) 8.463.700 9.394.707 10.494.988 kr./stk.

Stærð heimæðar er ákvörðuð af Hitaveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupenda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar er minni en 20 metrar gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 20 metra er heimilt að innheimta 2% af heimæðagjöldum. Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengipunkti greiðir hann heimæðagjöld að nýju.

Gjald vegna tengingar vinnuvatns er 136.270 kr. án vsk.

Heimæðagjald skal greiðast áður en heimæð tengist hitakerfi hússins, samkvæmt gildandi gjaldskrá.

Nú eru fleiri en eitt hitunarkerfi í húsinu með sérstökum hemlum eða mælum frá hitaveitunni og skal þá greiða 62.400 kr. aukalega fyrir hvern mæli/hemil.

Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari og tekur mið af gildandi reglum um virðisaukaskatt á hverjum tíma.

7. gr.

Nú eru leyfð afnot af hitaveitunni til annars en húshitunar, og er þá bæjarráði heimilt að ákveða gjald fyrir þau afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.

8. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda.

9. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð húseiganda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Til slíkra aðgerða má þó fyrst grípa eftir eindaga og að undangenginni skriflegri viðvörun, sem sendist kaupanda með eigi skemmri en þriggja daga fyrirvara. Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er, kr. 27.000 í hvert skipti sem opnað er.

10. gr.

Eftirlitsmanni Hitaveitu Mosfellsbæjar skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af bæjarstjórn Mosfellsbæjar 3. desember 2025, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá sama efnis nr. 1678/2024.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 16. desember 2025.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Steinar Örn Jónsson.

B deild — Útgáfudagur: 19. janúar 2026

Tengd mál