Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Innflutningur
Undirritunardagur
21. október 2022
Útgáfudagur
25. október 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1170/2022
21. október 2022
REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi.
1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar matvælaráðherra tollkvótum samkvæmt fríverslunarsamningi milli Íslands, Noregs, Liechtenstein og Bretlands, samkvæmt 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á þeim vörum sem taldar eru upp í 2. gr. frá Bretlandi og með upprunavottorð þaðan.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
| Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
| Úr tollskrárnr. | kg | % | kr./kg | ||
| ex0406 | Ostur og ystingur (*) | 01.01. - 31.12.23 | 11.000 | 0 | 0 |
| 0406 | Ostur og ystingur | 01.01. - 31.12.23 | 19.000 | 0 | 0 |
| 1602 | Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum | 01.01. - 31.12.23 | 18.400(**) | 0 | 0 |
(*)
Upprunavörur
með
vernduðum
upprunatáknun
(VUT)
og/eða
verndaðri,
landfræðilegri
merkingu
(VLM)
sem
fellur
undir
tollskrárlið
0406.
(**)
Árlegt
vörumagn
samkvæmt
samningnum
er
18.300
kg.
Árlegt
magn
bráðabirgðasamningsins
var
18.000
kg.
Því
eykst
árlegt
vörumagn
um
300
kg.
Árið
2023
bætast
við
100
kg
til
samræmis
við
ákvæði
samningsins.
Fríverslunarsamningnum
er
beitt
til
bráðabirgða
frá
1.
september
2022
og
er
því
4/12
af
300
kg
bætt
við
magn
ársins
2023.
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga nr. 99/1993. Tollkvótar eru auglýstir á vefsíðu matvælaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar og fram koma frekari upplýsingar um framkvæmd úthlutunarinnar.
4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is.
Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Úthlutun er ekki framseljanleg.
5. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
6. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.
7. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. og 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
8. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2023. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1297/2021 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi.
Matvælaráðuneytinu, 21. október 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.
B deild - Útgáfud.: 25. október 2022