Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Múlasýslur
Undirritunardagur
21. apríl 2026
Útgáfudagur
8. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 462/2026
21. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna veiðihúss í landi Einarsstaða.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 21. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. febrúar 2026.
Í breytingunni felst nýtt 10,6 ha verslunar- og þjónustusvæði VÞ5 þar sem fyrirhuguð er uppbygging veiðihúss með veitinga- og gistiþjónustu fyrir allt að 25 manns. Hámarksbyggingarmagn er 1.300 m².
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. maí 2026