Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
28. nóvember 2024
Útgáfudagur
29. nóvember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1369/2024
28. nóvember 2024
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1100/2006 um vörslu og tollmeðferð vöru.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. er tollyfirvöldum heimilt, til og með 31. desember 2025, að veita ábyrgðaraðila farmskrár skv. 3. gr., undanþágu frá m-lið 2. tölul. 1. mgr. ákvæðisins, um að sex stafa tollskrárnúmer vöru skuli koma fram í farmskrá, að uppfylltu eftirtöldu skilyrði:
- Ábyrgðaraðili farmskrár framvísar staðfestingu frá Matvælastofnun um að stofnuninni sé mögulegt að sinna lögbundnu eftirliti samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995, með komu sendinga af dýrum sem gefa af sér afurðir til manneldis og tilteknum vörum, sbr. reglugerð 234/2020, sem og sendingum sem ætlaðar eru til manneldis, sem og sendingum sem innihalda dýr og afurðir, sbr. reglugerð nr. 896/2024, á vegum hans.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 31. gr. og 3. mgr. 58. gr. tollalaga, nr. 88/2005, öðlast gildi 1. janúar 2025.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. nóvember 2024.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2024