Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Innflutningur

Undirritunardagur

21. júní 2017

Útgáfudagur

22. júní 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 554/2017

21. júní 2017

REGLUGERÐ

um úthlutun á opnum tollkvótum á frjóeggjum og eggjarauðum.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka IV A við 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn og verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.: Frjóegg til útungunar: % kr./kg
0407.1100 Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus 01.07.17-30.06.18 ótilgr. 0 0
0407.1900 Önnur 01.07.17-30.06.18 ótilgr. 0 0
-- Önnur
0408.1901 Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í ≥ 5 kg umbúðum 01.07.17-30.06.18 ótilgr. 0 39

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júní 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Birgitta Kristjánsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. júní 2017

Tengd mál