Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
18. febrúar 2015
Útgáfudagur
5. mars 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 224/2015
18. febrúar 2015
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.
1. gr.
Bókstafsliðir b, c og d undir tölulið 3.1 í 3. gr. breytast og orðast svo:
- Starfsskyldur lektora og dósenta í hálfu starfi (50%) eða meira skiptast almennt í 50% kennslu, 50% rannsóknir og stjórnun sem skiptist á milli kennslu og rannsókna. Því til viðbótar komi til afsláttur á kennsluskyldu fyrir nánar skilgreind stjórnunarstörf, sbr. 2. mgr. töluliðar 2.3 í 2. gr. þessara reglna.
- Starfsskyldur lektora og dósenta sem eru í minna en hálfu starfi (50%) skiptast í 74% kennslu, 26% rannsóknir og stjórnun sem skiptist á milli kennslu og rannsókna. Því til viðbótar komi til afsláttur á kennsluskyldu fyrir nánar skilgreind stjórnunarstörf, sbr. 2. mgr. töluliðar 2.3 í 2. gr. þessara reglna.
- Starfsskyldur aðjúnkta í hálfu starfi (50%) eða meira skiptast almennt í 67% kennslu, 33% rannsóknir og stjórnun sem skiptist á milli kennslu og rannsókna. Því til viðbótar komi til afsláttur á kennsluskyldu fyrir nánar skilgreind stjórnunarstörf, sbr. 2. mgr. töluliðar 2.3 í 2. gr. þessara reglna.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á I. lið töluliðar 3.2 í 3. gr.:
- Töluliður 5 undir lið A fellur brott.
-
2.
mgr.
ásamt
tilheyrandi
töflum
orðast
svo:
Hlutfallslega aukin kennsluskylda samkvæmt lið A er eins og fram kemur í töflum A, B og C þegar um fullt starf er að ræða.
|
Tafla
A Rannsóknavirkni, 3 ára meðaltal |
Tafla
B Rannsóknavirkni, 3 ára meðaltal |
Tafla
C Rannsóknavirkni, 3 ára meðaltal |
|||
|
Lektorar
og
dósentar í fullu starfi |
Prófessorar í fullu starfi | Aðjúnktar, fullt starf | |||
| Rannsóknastig | Kennsluskylda | Rannsóknastig | Kennsluskylda | Rannsóknastig | Kennsluskylda |
| 9 | 51% | 9 | 49% | 6 | 68% |
| 8 | 52% | 8 | 50% | 5 | 69% |
| 7 | 53% | 7 | 51% | 4 | 70% |
| 6 | 54% | 6 | 52% | 3 | 71% |
| 5 | 55% | 5 | 53% | 2 | 72% |
| 4 | 56% | 4 | 54% | 1 | 73% |
| 3 | 57% | 3 | 55% | 0 | 74% |
| 2 | 58% | 2 | 56% | ||
| 1 | 59% | 1 | 57% | ||
| 0 | 60% | 0 | 58% | ||
3. gr.
1. málsl. 1. mgr. 5. gr. orðast svo:
Til þess að eiga kost á rannsóknamisseri skal meðaltal rannsóknastiga úr völdum flokkum matskerfis opinberra háskóla, sbr. 1. tölulið 2. mgr. 6. gr. reglna nr. 263/2010 um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands, nema a.m.k. 10 stigum á ári.
4. gr.
Ákvæði til bráðabirgða, sbr. 2. gr. reglna nr. 189/2013, fellur brott.
5. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 18. febrúar 2015.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 5. mars 2015