Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
3. mars 2021
Útgáfudagur
17. mars 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 298/2021
3. mars 2021
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flugvernd, nr. 750/2016.
1. gr.
Við 2. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2021)996 frá 19. febrúar 2021 um breytingu á ákvörðun C(2015)8005 að því er varðar nánari útlistun flugverndarráðstafana til innleiðingar á sameiginlegum reglum um flugvernd, eins og vísað er til í a-lið 18. gr. reglugerðar (EB) nr. 300/2008.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 3. mars 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Ástríður Scheving Thorsteinsson.
B deild - Útgáfud.: 17. mars 2021