Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ríkisskattstjóri
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
16. desember 2015
Útgáfudagur
28. desember 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1200/2015
16. desember 2015
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum á árinu 2016, vegna framtalsgerðar o.fl.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2015 skuli skilað eigi síðar en 20. janúar 2016. Upplýsingum þessum skal skilað á tölvutæku formi og samkvæmt lýsingum á vef ríkisskattstjóra á slóðinni www.rsk.is.
- Launa- og verktakaupplýsingar o.fl. (RSK 2.01). Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar skv. 7. gr. laga nr. 90/2003.
- Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035). Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota.
- Hlutafjármiðar (RSK 2.045). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir.
- Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065). Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Skila skal m.a. upplýsingum um eign eigenda í félaginu í árslok og úttektir af höfuðstól á árinu.
- Launaframtali (RSK 1.04, RSK 1.06 eða RSK 4.05) skal skila rafrænt með almennu skattframtali.
- Viðskipti með hlutabréf/afleiður. Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf og/eða afleiður. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila.
- Innstæður. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar eða hafa milligöngu um ávöxtun eða aðra ráðstöfun fjármuna, s.s. vegna söfnunarlífeyristrygginga. Sama á við um þá sem gefa út inneignarkort, hvort heldur í eigin nafni eða sem umboðsmenn erlendra aðila hér á landi. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga, innstæður og vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og afdrátt staðgreiðslu og stöðu þessara krafna í árslok.
-
Viðskipti
með
verðbréf,
önnur
en
hlutabréf
og
afleiður,
sbr.
6.
tölul.
að
framan.
Skila
skal,
sundurliðað
á
kennitölu
eða
erlent
skattauðkennisnúmer
(TIN)
viðskiptaaðila,
upplýsingum
um
öll
verðbréf,
s.s.
kröfur
og
hlutdeildarskírteini.
Tilgreina
skal
vaxtatekjur,
þ.m.t.
verðbætur,
afföll
og
gengishagnað,
hvort
heldur
greitt
hefur
verið
erlendum
eða
innlendum
aðilum
og
afdregna
staðgreiðslu
af
þeim,
og
stöðu
í
árslok.
Flokka skal fjármálagerninga í almenna, sérstaka (kúlubréf, s.s. spariskírteini). Vaxtatekjur af sérstökum verðbréfum, sem seld voru eða innleyst á árinu 2015, þarf að sundurliða eftir því sem þær hafa áunnist. Sjá nánar í skilalýsingu á vef ríkisskattstjóra. - Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán). Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur, greiðslukortafyrirtæki o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um kröfur sem hafa verið afskrifaðar að hluta eða öllu leyti.
- Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
- Greiðslumiðar - leiga eða afnot (RSK 2.02). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
- Hlutabréfakaup skv. staðfestri kaupréttaráætlun (RSK 2.085). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um söluréttarsamninga.
- Fjármagnstekjur. Þeir sem innheimt hafa vexti (þ.m.t. verðbætur og dráttarvexti), skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur, sundurliðað á móttakendur, og staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtuaðila, t.d. lögfræðistofur, óháð því hvort veitt hefur verið undanþága frá afdrætti staðgreiðslu við innheimtu á vaxtatekjum einstaklinga.
Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, þarf skilaskyldur aðili, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.
Allar fyrirspurnir vegna gagnaskila má senda á netfangið gagnaskil@rsk.is.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 16. desember 2015.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 28. desember 2015