Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Ríkisstofnanir

Undirritunardagur

29. desember 2025

Útgáfudagur

30. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1530/2025

29. desember 2025

GJALDSKRÁ

Geislavarna ríkisins.

1. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geislavirkum efnum í samræmi við 5. og 17. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Röntgentæki kr.
  a) Röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka 100.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni 36.000
  b) Röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning 129.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni 47.500
  c) Tölvusneiðmyndatæki og O-bogar 172.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni 100.500
  d) Tannröntgentæki 50.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni 21.500
  e) Tölvusneiðmyndatæki við tannlækningar 134.000
  f) Iðnaðarröntgentæki (opin aðstaða) 84.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni 43.000
  g) Dýralækningaröntgentæki 78.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni

25.000

  h) Skermuð öryggisröntgentæki 57.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir sama ábyrgðarmanni:  
    fimm eða færri tæki 25.000
    fyrir hvert tæki umfram fimm 18.000
  i) Skermuð röntgentæki til efnarannsókna og gæðaeftirlits með iðnaði 50.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og með sama ábyrgðarmann 18.000
     
2. Geislalækningatæki, línuhraðlar og hringhraðlar 131.000
  Fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild 44.500
     
3. Geislavirk efni, opnar geislalindir  
  a) Rannsóknastofa í flokki A eða sambærileg starfsemi 144.500
  b) Rannsóknastofa í flokki B eða sambærileg starfsemi 98.500
  c) Rannsóknastofa í flokki C eða sambærileg starfsemi 62.500
     
4. Geislavirk efni, lokaðar geislalindir  
  a) Nifteindalindir eða hágeislavirkar lindir (sbr. viðauka 1 í reglugerð nr. 1298/2015 og ráðleggingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar) 77.500
    i) fyrir hverja nifteindalind/hágeislavirka lind til viðbótar hjá sama aðila 31.500
  b) Kvörðunarlindir, allt að tíu á sama vinnustað og sem tilheyra sama ábyrgðarmanni 73.000
    i) fyrir hverja kvörðunarlind umfram tíu lindir 7.000
  c) Aðrar lokaðar geislalindir 73.000
    fyrir hverja eins lind til viðbótar:  
    i) fimm eða færri til viðbótar á sama stað með sama ábyrgðarmann 21.500
    ii) fyrir hverja lind umfram fimm á sama stað með sama ábyrgðarmann 18.000
     
5. Eftirlit með geislaálagi starfsfólks  
  a) Almennar geislaálagsmælingar (TLD) fyrir hvert mælitímabil 4.000
  b) Sérhæfðar geislaálagsmælingar, nifteindageislun, fyrir hvert mælitímabil 12.500
  c) Aðrar sérhæfðar geislaálagsmælingar 8.000
  d) Viðbótargjald fyrir hvern geislaálagsmæli sem týnist eða skemmist 11.000

Heimilt er að lækka eftirlitsgjald um 50% þegar ekki þarf að fara á staðinn heldur nægir að fara yfir gögn og mælingar. Það á við um staði þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við síðasta eftirlit og starfsemin er óbreytt.

2. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7. og 9. gr. laga um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Vegna geislatækja í læknisfræði kr.
  a) Tannröntgentæki 16.500
  b) Röntgentæki til dýralækninga 25.000
  c) Röntgentæki til sjúkdómsgreininga 25.000
  d) Geislalækningatæki og línuhraðlar 41.500
     
2. Vegna geislatækja í iðnaði og við öryggisgæslu  
  a) Skermuð röntgentæki 16.500
  b) Háorkuröntgentæki 25.000
     
3. Vegna lokaðra geislalinda  
  a) Innflutningur og/eða geymsla 25.000
  b) Notkun annarra geislalinda en í c-lið 25.000
  c) Notkun nifteindalinda eða hágeislavirkra linda (sbr. viðauka 1 í reglugerð nr. 1298/2015 og ráðleggingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar)

42.000

     
4. Vegna opinna geislalinda  
  a) Rannsóknastofa í flokki C eða sambærileg starfsemi 25.000
  b) Rannsóknastofa í flokki B eða sambærileg starfsemi 33.000
  c) Rannsóknastofa í flokki A eða sambærileg starfsemi 41.500
  d) Framleiðsla geislavirkra efna 333.500
  e) Innflutningur og/eða geymsla 25.000
     
5. Mat á skermun, nýr staður eða breytingar 25.000
     
6. Vegna endurútgáfu leyfa (nýr ábyrgðarmaður eða kennitala leyfishafa)  
  a) Fyrir allt að þrjú tæki/lindir 16.500
  b) Fyrir hvert tæki til viðbótar 4.000
     
7. Vegna notkunar leysa og leysibenda  
  a) Tónleikar og ýmsar sýningar, einn viðburður, almenn afgreiðsla 35.000
  b) Tónleikar og ýmsar sýningar, hraðafgreiðsla (innan fjögurra virkra daga) 70.500
  c) Tónleikar og ýmsar sýningar, fleiri en einn viðburður, almenn afgreiðsla 70.500
  d) Önnur notkun 16.500
     
8. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald sem nemur 22.500 kr./klst. vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7. og 9. gr. laga um geislavarnir vegna annars en þess sem talið er upp hér að ofan.  

3. gr.

Geislavarnir ríkisins annast innheimtu leyfis- og eftirlitsgjalda. Leyfis- og eftirlitsgjöld falla í gjalddaga við útgáfu reiknings með eindaga 30 dögum síðar.

4. gr.

Vegna endurtekinnar eftirfylgni eftirlits vegna þess að ekki er orðið við kröfum um úrbætur innan tiltekins tíma skal innheimt gjald skv. 5. gr. Þurfi Geislavarnir ríkisins að endurtaka eftirlit vegna þess að ekki hefur verið orðið við kröfum um úrbætur sem gerðar voru við reglubundið eftirlit þrátt fyrir endurtekna eftirfylgni skal greiða fyrir það líkt og um reglubundið eftirlit væri að ræða.

Eigandi eða ábyrgðarmaður getur óskað eftir aukaeftirliti og skal þá greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða.

5. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald á hverja klukkustund fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér samkvæmt lögum og reglugerðum:

      kr.
  a) Sérfræðingur 26.000
  b) Fulltrúi 19.500

6. gr.

Eftirlits- og leyfisgjöld eru tryggð með lögveðsrétti í eftirlitsskyldum tækjum í tvö ár eftir gjalddaga.

7. gr.

Fyrir ýmsar mælingar sem Geislavarnir ríkisins framkvæma skal stofnunin innheimta gjald, að fjárhæð:

      kr.
  a) Geislun eða geislavirkni 41.500
  b) Rafsegulsvið, útfjólublá geislun og geislun frá leysum, fyrir allt að átta mælingar á sama stað  83.500
  c) Leysibendar, allt að fjórar mælingar 16.500
  d) Leysibendar, hver mæling umfram fjórar mælingar 4.000
  e) Stroksýni, sem ekki er hluti af eftirliti, ef farið er á staðinn 52.000
  f) Stroksýni, sem ekki er hluti af eftirliti, ekki farið á staðinn 26.000
  g) Fyrir hvert auka stroksýni 6.000

Fyrir hverja yfirlýsingu um geislavirkni sem stofnunin lætur í té skal innheimta 6.500 kr.

Ef mælingar á rafsegulsviði eru í vinnuumhverfi, þ.e. á svæði þar sem starfsfólk getur verið að störfum, skal stofnunin meta umfang hverrar mælingar fyrir sig og innheimta tímagjald fyrir veitta þjónustu skv. 5. gr.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 19. og 21. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Geislavarna ríkisins nr. 1576/2024.

Heilbrigðisráðuneytinu, 29. desember 2025.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025

Tengd mál