Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölmiðlar
Undirritunardagur
9. júlí 2026
Útgáfudagur
9. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 788/2026
9. júlí 2026
REGLUGERÐ
um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla.
1. gr. Gildissvið.
Ákvæði reglugerðarinnar gilda um einkarekna fjölmiðla sem afla og miðla fréttum og fréttatengdu efni og uppfylla skilyrði í 62. gr. g fyrir almennum rekstrarstuðningi eða 62. gr. h fyrir viðbótarstuðningi í lögum nr. 38/2011 og 4. og 6. gr. reglugerðar þessarar.
Með einkareknum fjölmiðli er átt við fjölmiðil sem er hvorki í heild né að hluta í opinberri eigu, þ.e. hvorki opinberra hlutafélaga, ríkis, sveitarfélaga eða stofnana né í eigu félags eða annars lögaðila alfarið í þeirra eigu.
Reglugerðin gildir ekki um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, sbr. lög nr. 23/2013.
2. gr. Umsókn og umsóknargögn.
Úthlutunarnefnd tekur ákvörðun um úthlutun rekstrarstuðnings og skal umsókn um rekstrarstuðning, ásamt fylgigögnum, berast úthlutunarnefnd eigi síðar en 1. júní ár hvert á tímabilinu 2027-2030.
Ef fjölmiðlaveita starfrækir beint eða óbeint fleiri en einn fjölmiðil sem uppfyllir skilyrði 62. gr. g eða 62. gr. h laga um fjölmiðla skal umsókn vera sameiginleg vegna þeirra beggja eða allra.
Berist umsókn um rekstrarstuðning vegna næstliðins árs eftir umsóknarfrest skal vísa henni frá. Heimilt er þó að taka umsókn til meðferðar hafi hún borist að þessum fresti liðnum ef gildar ástæður eru fyrir töfinni.
Stjórn eða framkvæmdastjóri fjölmiðils skal staðfesta að upplýsingar og gögn vegna umsóknar séu í samræmi við ákvæði laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og reglugerðar þessarar.
Allar umsóknir skulu afgreiddar í einu lagi, sbr. þó ákvæði 3. mgr.
Umsækjanda ber að sýna fram á að launa- og verktakagreiðslur hafi verið greiddar óski úthlutunarnefnd eftir gögnum til að sannreyna stuðningshæfan rekstrarkostnað, til að mynda virðisaukaskattskýrslum og bókhaldi.
Umsækjandi getur ekki fengið rekstrarstuðning oftar en einu sinni vegna vinnu sama starfsmanns, t.d. vegna blaðamanns sem þiggur laun frá umsækjanda sem starfrækir fleiri en einn fjölmiðil og ritar fréttir bæði í prent- og netmiðil eða ljósmyndara í sömu stöðu sem tekur ljósmyndir sem birtar eru í prent- og netútgáfu viðkomandi fjölmiðils.
3. gr. Umsóknir um almennan rekstrarstuðning.
Í umsókn um almennan rekstrarstuðning skulu koma fram sundurliðuð gögn um stuðningshæfan rekstrarkostnað, sbr. 62. gr. g, 62. gr. i, og eftirfarandi:
- Meðalfjöldi stöðugilda.
- Fjöldi verktaka.
- Beinn launakostnaður starfsfólks á ritstjórnum fjölmiðla sem fellur til við að afla og miðla fréttum og fréttatengdu efni fyrir árið á undan, þ.e. starfa við blaða- og fréttamennsku, ritstjórn og aðstoðarritstjórn, myndatöku og ljósmyndun, myndstjórn, upptökustjórn, myndvinnslu, hljóðvinnslu, grafíska hönnun, umbrot, vefforritun og prófarkalestur.
- Heildarfjárhæð greiðslna til verktaka sem fellur til við að afla og miðla fréttum og fréttatengdu efni fyrir árið á undan, vegna starfa skv. c-lið.
- Gögn um útgáfutíðni, sbr. 4. tölulið 62. gr. g.
- Gögn er staðfesta greiðslustöðu fyrirtækisins gagnvart ríkissjóði.
- Gögn er staðfesta að umsækjandi var ekki í fjárhagserfiðleikum í lok ársins á undan, í skilningi reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014, sbr. 1. gr. 4-c og 18. tölulið 2. gr.
Upplýsingar skv. 1. mgr. skulu vera staðfestar af löggiltum endurskoðanda. Ef um er að ræða fjölmiðlaveitur með ársveltu undir 20 millj. kr. skulu upplýsingarnar vera staðfestar af löggiltum endurskoðanda eða viðurkenndum bókara.
4. gr. Skilyrði fyrir almennum rekstrarstuðningi.
Skilyrði fyrir rekstrarstuðningi til einkarekins fjölmiðils eru auk þeirra sem kveðið er á um í 62. gr. g laga um fjölmiðla nr. 38/2011: Í fjölmiðli skulu vera fréttir og fréttatengt efni. Hér er átt við reglubundna miðlun frétta og fréttatengds efnis, sem byggist á vinnuframlagi starfsfólks á ritstjórn fjölmiðils, sbr. 62. gr. i laga um fjölmiðla.
Með fréttum er átt við reglubundna miðlun frásagna af atburðum líðandi stundar sem varða almenning að mati fjölmiðils.
Með fréttatengdu efni er átt við fréttaskýringar, frásagnir og umræður líðandi stundar um efni í víðum skilningi frá mismunandi sviðum þjóðfélagsins sem er ofarlega á baugi hér á landi eða erlendis hverju sinni. Fréttir af íþróttum geta talist til fréttatengds efnis í skilningi 62. gr. i laga um fjölmiðla. Leiklýsingar samhliða beinum útsendingum frá keppnisíþróttum í sjónvarpi og útvarpi og umræður sérfræðinga og dagskrárgerðarfólks um íþróttakappleiki í sjónvarpi og útvarpi teljast ekki fréttatengt efni í skilningi 62. gr. i laga um fjölmiðla.
5. gr. Umsóknir um viðbótarstuðning við fréttaþjónustu
í almannaþágu á landsvísu.
Í umsókn um viðbótarstuðning við fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu skulu koma fram sundurliðuð gögn um stuðningshæfan rekstrarkostnað vegna fréttaþjónustu í almannaþágu, sbr. 62. gr. h, 62. gr. i, 3. gr. reglugerðarinnar og eftirfarandi:
- Fjöldi stöðugilda blaðamanna, blaðaljósmyndara og myndatökumanna í fullu starfi við að sinna fréttaþjónustu í almannaþágu, sbr. skilyrði 5. tölul. 1. mgr. 62. gr. h um að á ritstjórn séu að lágmarki 20 slík stöðugildi.
- Stutt lýsing á vaktafyrirkomulagi og öðru skipulagi á ritstjórn sem sýni fram á að uppfyllt séu skilyrði um viðbragðsgetu ritstjórnar allan sólarhringinn.
- Staðfesting þess að uppfyllt séu skilyrði um 50% lágmarkshlutfall ritstjórnarefnis á móti auglýsingum í prent- og vefmiðlum.
- Staðfesting þess að uppfyllt séu skilyrði um 25% lágmarkshlutfall efnis sem er frumunnið á ritstjórn.
- Gögn sem sýni fram á að fjölmiðill sinni kosningaumfjöllun á landsvísu, t.d. stutt lýsing á fyrirkomulagi kosningaumfjöllunar fyrir síðustu sveitarstjórnar- eða alþingiskosningar.
Upplýsingar skv. 1. mgr. skulu vera staðfestar af framkvæmdastjóra fjölmiðlaveitu.
Umsækjanda ber að leggja fram gögn því til staðfestingar að uppfyllt séu skilyrði 62. gr. h um útgáfutíðni, hlutfall ritstjórnarefnis á móti auglýsingum og hlutfall efnis sem er frumunnið á ritstjórn prent- og vefmiðla.
Úthlutunarnefnd metur hvort fjölmiðill uppfylli skilyrði um hlutfall ritstjórnarefnis á móti auglýsingum og hlutfall efnis sem er frumunnið á ritstjórn. Við mat sitt getur nefndin tekið til skoðunar valin tölublöð prentmiðla eða vefbirtingar vefmiðla eftir því sem hún telur nauðsynlegt. Óski úthlutunarnefnd eftir frekari gögnum sem sýni fram á að skilyrðin séu uppfyllt ber umsækjanda að afhenda þau.
6. gr. Skilyrði fyrir viðbótarstuðningi við fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu.
Um skilyrði fyrir viðbótarstuðningi við fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu er fjallað í 62. gr. i og 62. gr. h laga um fjölmiðla, nr. 38/2011.
Fréttaþjónusta í almannaþágu á landsvísu er dagleg fréttaþjónusta fjölmiðils sem þjónar almenningi um allt land og hefur viðbragðsgetu allan sólarhringinn. Efnistök fjölmiðils eru almenn, fjölbreytt og með breiða skírskotun en ekki bundin við afmörkuð svið samfélagsins eða staðbundin landsvæði. Fjölmiðill starfrækir sjálfstæða fréttaritstjórn þar sem að lágmarki 20 blaðamenn, blaðaljósmyndarar og myndatökumenn eru í fullu starfi við að afla og miðla fréttum. Ritstjórn starfar á grundvelli siðareglna Blaðamannafélags Íslands sem fela í sér viðtekin gildi vandaðrar blaða- og fréttamennsku.
Með viðbragðsgetu allan sólarhringinn er átt við að fjölmiðill geti brugðist fljótt við á öllum tímum sólarhrings og miðlað m.a. upplýsingum um óvænta atburði, t.d. náttúruhamfarir og aðra vá sem kallar á skjót viðbrögð fjölmiðla í almannaþágu. Fjölmiðill hafi burði til að manna fréttavaktir, bakvaktir, sækja blaðamannafundi o.fl.
Ritstjórnarefni er allt það efni sem birtist eða er miðlað af fjölmiðli, nema viðskiptaboð, fjarkaup og annað efni sem miðlað er gegn greiðslu eða öðru endurgjaldi eða til kynningar í eigin þágu.
Með frumunnu ritstjórnarefni er m.a. átt við að efnið byggi ekki í meginatriðum á endurbirtingu efnis annarra fjölmiðla eða fréttum af erlendum vettvangi. Blaðamaður eða ritstjórn hafi sjálf aflað upplýsinga, tekið eigið viðtal og notað eigin ljósmyndir eða myndskeið. Þá telst efni ekki frumunnið á ritstjórn ef það felur einungis í sér íslenska þýðingu á áður birtu efni.
7. gr. Endurákvörðun um veitingu rekstrarstuðnings.
Komi í ljós að rekstrarstuðningur við umsækjanda hafi verið of hár, sbr. 62. gr. k laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, er úthlutunarnefnd heimilt að hlutast til um að fyrri ákvörðun verði tekin upp og gera endurkröfu um stuðninginn, ásamt vöxtum, á grundvelli meginreglna kröfuréttar og 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins, sbr. einnig IV. viðauka við ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA nr. 788/08/COL frá 17. desember 2008 um endurheimtu ólögmætrar og ósamrýmanlegrar ríkisaðstoðar. Í úthlutunarbréfi til styrkþega skal greint frá þessum fyrirvara.
Við meðferð slíkra mála skal úthlutunarnefnd afla nauðsynlegra gagna og gefa aðilum kost á andmælum áður en ákvörðun er tekin. Gefa skal styrkþega að minnsta kosti fjögurra vikna frest til að skila inn gögnum og koma á framfæri andmælum við hugsanlega endurkröfu um rekstrarstuðning.
8. gr. Umsjón og umsýsla.
Úthlutunarnefnd og fjölmiðlanefnd skulu gera með sér samkomulag um umsýslu umsókna, sérfræðiaðstoð og annað sem aðilar koma sér saman um varðandi vinnuframlag fjölmiðlanefndar. Samkomulagið skal bera undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra til staðfestingar.
Í samningi framangreindra aðila skuli koma fram áætlun um vinnuframlag fjölmiðlanefndar og hvað er lagt til grundvallar við ákvörðun greiðslu fyrir unnar stundir.
Kostnað við umsýslu og annað samkvæmt samningi, sbr. 1. mgr., skal greiða af fjárveitingum til málaflokksins.
Um þóknun fyrir störf úthlutunarnefndar fer samkvæmt ákvörðun menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
9. gr. Gildistaka
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 62. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, og öðlast þegar gildi. Reglugerðin fellur úr gildi 1. janúar 2031.
Ákvæði til bráðabirgða.
Árið 2026 skulu umsóknir um almennan rekstrarstuðning, sbr. 62. gr. g laga um fjölmiðla, berast úthlutunarnefnd eigi síðar en 1. september. Umsóknir um viðbótarstuðning, sbr. 62. gr. h laga um fjölmiðla, skulu berast eigi síðar en 1. nóvember.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, 9. júlí 2026.
Logi Einarsson.
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. júlí 2026