Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 708/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 488/2024 um doktorsnám á félagsvísindasviði Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðsins „doktorsprófs“ í 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglnanna kemur orðið: doktorsgráðu.
2. gr.
Í stað orðsins „doktorsprófi“ í 2. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglnanna kemur orðið: doktorsgráðu.
3. gr.
Í stað orðsins „doktorspróf“ í 3. málsl. 1. mgr. 9. gr. reglnanna kemur orðið: doktorsgráðu.
4. gr.
Í stað orðsins „doktorsprófi“ í 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. reglnanna kemur orðið: doktorsgráðu.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „doktorspróf“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur orðið: doktorsgráðu.
- Í stað orðsins „doktorspróf“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur orðið: doktorsgráðu.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „Meistarapróf“ í 1. málsl. kemur orðið: Meistaragráða.
- Í stað orðsins „meistarapróf“ í 2. málsl. kemur orðið: meistaragráðu.
7. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 1. mgr. 34. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025