Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Fjölmiðlar
Undirritunardagur
7. september 2026
Útgáfudagur
11. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 980/2026
7. september 2026
REGLUR
um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna.
1. gr. Tilgangur og markmið.
Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna er ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlum og stuðla að vernd íslenskrar tungu.
2. gr. Fjármögnun og úthlutanir.
Sjóðnum eru lagðar til árlega 60 millj. kr. af fjárlögum áranna 2024-2027. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra úthlutar fé úr sjóðnum. Styrkur til verkefnis getur aldrei numið hærri fjárhæð en 80% kostnaðaráætlunar.
Úthlutað er einu sinni á ári.
3. gr. Orðskýringar.
Í reglum þessum er merking eftirfarandi hugtaka sem hér greinir:
- Áskriftarfjölmiðill er fjölmiðill með fleiri en 2.000 áskrifendur.
- Barnaefni er hljóð- og myndmiðlunarefni ætlað börnum yngri en 12 ára.
- Einkarekinn fjölmiðill er fjölmiðill sem er hvorki í heild eða að hluta í opinberri eigu, þ.e. hvorki opinberra hlutafélaga, ríkis, sveitarfélaga eða stofnana né í eigu félags eða annars lögaðila alfarið í þeirra eigu.
- Fjölmiðlaveita er einstaklingur eða lögaðili sem starfrækir fjölmiðil.
4. gr. Umsýsla og auglýsing um styrkveitingar.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur umsýslu með sjóðnum og auglýsir eftir umsóknum. Í auglýsingu skal tilgreina þær kröfur sem gerðar eru til umsókna og fyrir hvaða tíma þær skuli berast.
5. gr. Skilyrði fyrir styrkveitingu.
Styrkir eru veittir til einkarekinna fjölmiðla sem eru skráðir eða hafa leyfi til hljóð- og myndmiðlunar í skilningi IV. kafla laga um fjölmiðla, nr. 38/2011.
Styrkir eru veittir til talsetningar og/eða textunar á barnaefni á íslensku sem er til sýningar á innlendum áskriftarfjölmiðli. Umsækjandi skal sjálfur starfrækja viðkomandi áskriftarfjölmiðil. Miðað er við að efnið hafi verið frumsýnt á áskriftarfjölmiðlinum síðastliðna 12 mánuði og er þar miðað við dagsetningu umsóknarfrests.
6. gr. Umsókn og meðferð umsókna.
Í umsókn skulu meðal annars koma fram heiti fjölmiðlaveitu, titill verks ásamt kostnaðaráætlun vegna talsetningar og/eða textunar verksins.
Í því skyni að sannreyna kostnað sem tilgreindur er í umsókn getur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið óskað eftir viðeigandi upplýsingum frá umsækjanda. Séu gögn ófullnægjandi skal veita umsækjanda frest til að skila inn fullnægjandi gögnum.
Njóti umsækjandi annarra styrkja fyrir verkefnið skal það koma fram í umsókn.
Öllum umsóknum skal svarað skriflega.
7. gr. Uppgjör.
Styrkurinn er greiddur út í heilu lagi.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið getur óskað eftir viðeigandi upplýsingum frá umsækjanda í tengslum við mat á árangri af styrkveitingum úr sjóðnum í árslok 2026.
8. gr. Gildistaka og gildistími.
Reglur þessar eru settar á grundvelli 42. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og 5. gr. reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018. Reglur þessar taka þegar gildi og gilda til 31. desember 2026. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1231/2025.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, 7. september 2026.
Logi Einarsson.
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 11. september 2026