Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
13. október 2016
Útgáfudagur
28. október 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 885/2016
13. október 2016
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu nr. 812/2012.
1. gr. Innleiðing.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem orðist svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/4 frá 5. janúar 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 að því er varðar grunnkröfur um umhverfisvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2016 frá 18. mars 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 721.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 136. gr. a og 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 13. október 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
B deild - Útgáfud.: 28. október 2016