Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið (2008_2012)
Málaflokkur
Landbúnaður
Undirritunardagur
19. ágúst 2009
Útgáfudagur
21. ágúst 2009
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 717/2009
19. ágúst 2009
AUGLÝSING
um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma.
Að tillögu Matvælastofnunar, skv. heimild í 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, eru hér með settar svofelldar reglur um skiptingu varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma:
1. gr.
Aðalvarnarlínur.
Aðalvarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:
| 1. | Sogslína: | Ölfusá og Sog í Þingvallavatn. | |
| 2. | Bláskógalína: | Úr Þingvallavatni um Ármannsfell í Hvalfjarðarlínu við Kvígindisfell. | |
| 3. | Brúará: | Brúará. | |
| 4. | Hlíðarbæjarlína: | Frá Brúará um Fullsæl og Andarlæk um Múlanes í Tungufljót og Far í Hagavatn. | |
| 5. | Hvalfjarðarlína: | Úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Matbrunnum við Uxahrygg í Hrúðurkarla við Þórisjökul. | |
| 6. | Snæfellslína: | Úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð. | |
| 7. | Hvammsfjarðarlína: | Úr Hvammsfirði milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða um Laxárdalsheiði í Hrútafjörð sunnan Fjarðarhorns. | |
| 8. | Gilsfjarðarlína: | Úr Gilsfirði um Snartartungu í Bitrufjörð. | |
| 9. | Kollafjarðarlína: | Úr Kollafirði í Ísafjarðarbotn. | |
| 10. | Tvídægrulína: | Úr Hvammsfjarðarlínu við Skeggöxl um Kvíslavötn og Arnarvatn stóra í Langjökul við Jökulstalla. | |
| 11. | Miðfjarðarlína: | Úr Miðfirði um Miðfjarðarvatn í Arnarvatn stóra. | |
| 12. | Vatnsneslína: | Úr Miðfjarðarvatni í Síðukrók við ósa Víðidalsár. | |
| 13. | Kjalarlína: | Milli Langjökuls og Hofsjökuls. | |
| 14. | Blöndulína: | Blanda. | |
| 15. | Héraðsvatnalína: | Héraðsvötn - Jökulsá eystri. | |
| 16. | Eyjafjarðarlína: | Eyjafjarðará sunnan Bringu að Sjónarfelli og að Miklafelli í Hofsjökli. | |
| 17. | Sprengisandslína: | Úr Miklafelli að Tungnafellsjökli og um Vonarskarð í Vatnajökul. | |
| 18. | Skjálfandalína: | Skjálfandafljót - Fjórðungakvísl. | |
| 19. | Fjallalína: | Jökulsá á Fjöllum. | |
| 20. | Jökuldalslína: | Jökulsá á Dal. | |
| 21. | Lagarfljótslína: | Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót. | |
| 22. | Hamarsfjarðarlína: | Hamarsá í Hamarsfirði í Þrándarjökul og þaðan í Vesturdalsjökul. | |
| 23. | Breiðamerkursandslína: | Jökulsá á Breiðamerkursandi. | |
| 24. | Skeiðarársandslína: | Sandgígjukvísl. | |
| 25. | Tungnaárlína: | Frá Botnjökli í Mýrdalsjökli um Mælifellssand í Torfajökul, frá Hábarmi um Kirkjufellsvatn í Tungnaá og þaðan að Jökulgrindum í Vatnajökli. | |
| 26. | Markarfljótslína: | Markarfljót og Syðri-Emstruá. | |
| 27. | Þjórsárlína: | Þjórsá. |
2. gr.
Aukavarnarlínur.
Aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:
| 1. | Smjörfjallalína: | Um Smjörvatnsheiði og Smjörfjöll í Böðvarsdalsá og til sjávar. | |
| 2. | Hvítárlína: | Hvítá í Árnessýslu frá Hvítárvatni að Brúará. |
3. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 155/1987 um varnarlínur sauðfjárvarnarsvæða. Auglýsingin tekur þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 19. ágúst 2009.
Jón Bjarnason.
Arnór Snæbjörnsson.
B deild - Útgáfud.: 21. ágúst 2009