Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður
Undirritunardagur
15. september 2023
Útgáfudagur
18. september 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 957/2023
15. september 2023
REGLUGERÐ
um (42.) breytingu á reglugerð um eftirlit með sáðvöru, nr. 301/1995.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/905 frá 9. júní 2022 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB að því er varðar aðferðarlýsingar vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2023, frá 3. febrúar 2023. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 20, 9. mars 2023, bls. 280.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 15. september 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Svava Pétursdóttir.
B deild - Útgáfud.: 18. september 2023