Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

19. ágúst 2026

Útgáfudagur

20. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 901/2026

19. ágúst 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi, nr. 448/2014.

1. gr.Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

14.1  Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1173 frá 28. maí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2024/385 um að koma á þvingunaraðgerðum gegn þeim sem styðja ofbeldisverk Hamas-samtakanna og samtakanna Palestínskt íslamskt Jihad (PIJ), greiða fyrir þeim eða gera þau möguleg, sbr. fylgiskjal 14.1.

15.1  Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1175 frá 28. maí 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) 2024/386 um að koma á þvingunaraðgerðum gegn þeim sem styðja ofbeldisverk Hamas-samtakanna og samtakanna Palestínskt íslamskt Jihad (PIJ), greiða fyrir þeim eða gera þau möguleg, sbr. fylgiskjal 15.1.

2. gr.Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 19. ágúst 2026.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild — Útgáfudagur: 20. ágúst 2026

Tengd mál