Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Vopnafjarðarhreppur

Undirritunardagur

15. september 2026

Útgáfudagur

1. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1050/2026

15. september 2026

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Vopnafjarðarhrepps, nr. 575/2023.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 47. gr. samþykktarinnar:

  1. Í stað orðsins sjö í 1. málsl. 1., 2. og 3. tl. A-liðar kemur: fimm.
  2. Við B-lið bætist nýr töluliður, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi: Öldungaráð. Sex fulltrúar og sex til vara samkvæmt erindisbréfi öldungaráðs Vopnafjarðarhrepps.
  3. 3., 8. og 10. tl. C-liðar falla brott, og uppfærast númer eftirkomandi töluliða til samræmis við það.
  4. 2. tl. D-liðar fellur brott, og uppfærast númer eftirkomandi töluliða til samræmis við það.

2. gr.

2. málsl. 51. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo: Auk sveitarstjóra falla eftirfarandi störf undir skilgreiningu á að vera hluti af æðstu stjórnunarstöðum: Fjármálastjóri, skólastjóri, leikskólastjóri og forstöðumaður áhaldahúss.

3. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur sett samkvæmt 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 15. september 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 1. október 2026

Tengd mál