Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Ölfus

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

24. júní 2026

Útgáfudagur

1. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 742/2026

24. júní 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Hafnarbakki 8 – lítilleg stækkun byggingarreits – óveruleg breyting deiliskipulags.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026, óverulega breytingu á deiliskipulagi Hafnarbakka 8. Breytingin varðar lóðina Hafnarbakka 8 og felur í sér lítillega stækkun byggingarreits og aukningu nýtingarhlutfalls vegna dælukjallara og við það eykst leyfilegt byggingarmagn sem yrði í samræmi við núgildandi aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Kirkjuferjuhjáleiga – tvær íbúðarlóðir – nýtt deiliskipulag.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 11. desember 2025, nýtt deiliskipulag fyrir jörðina Kirkjuferjuhjáleiga. Skipulagið felur í sér að á landbúnaðarlandinu verða stofnaðar tvær lóðir þar sem heimilt er að byggja upp til fastrar búsetu.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hafnarsandur 2 – stækkun tengivirkis – breyting á deiliskipulagi.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagisins Ölfuss 26. maí 2026, breytingu á deiliskipulagi Hafnarsands 2. Breytingin er vegna tengivirkis Landsnets að Hafnarsandi 2. Til stendur að stækka tengivirkið vegna tilkomu nýs 132 kV jarðstrengs sem tengir Þorlákshöfn inn á netið.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Hafnarsvæði H1 – nýr jarðstrengur – óveruleg breyting deiliskipulags.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026, óverulega breytingu á deiliskipulag á Hafnarsvæði H1. Skipulagið felur í sér að settur verður jarðstrengur, Þorlákshafnarlína, og helgunarsvæði sem er að mestu í jaðri veghelgunarsvæðis Þorlákshafnarvegar.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Norðurbakki 7-9 – sameining lóða 7 og 9 – óveruleg breyting deiliskipulags.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 30. apríl 2026, óverulega breytingu á deiliskipulagi Hafnarsvæði Þorlákshafnar. Í breytingunni felst að sameinaðar eru lóðirnar Norðurbakki 7 og Norðurbakki 9.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Spóavegur 12-12a – sameining lóða og skipulags – breyting á deiliskipulagi.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. nóvember 2025, breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóaveg 12 og deiliskipulagi fyrir Spóaveg 12a. Í breytingunni felst að gildandi deiliskipulag fyrir lóðirnar eru felld niður en í staðinn er lagt fram eitt sameiginlegt deiliskipulag.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Þorlákshöfn, 24. júní 2026.

Sigurður Steinar Ásgeirsson,

sviðsstjóri skipulags- og lögfræðisviðs.

B deild — Útgáfudagur: 1. júlí 2026

Tengd mál