Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Ísafjarðarbær, Brunamál
Undirritunardagur
30. september 2025
Útgáfudagur
14. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1175/2025
30. september 2025
GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.
I. KAFLI Almennt.
1. gr.
Verkefni Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
2. gr.
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
3. gr.
Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum og/eða fellur að markmiðum Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.
II. KAFLI Lögbundin verkefni.
4. gr.
Innheimta lögbundinna verkefna Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000, s.s. 12. gr. og 29. gr.
Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 21.715 kr.
5. gr. Umsagnir.
Fyrir umsagnir sem önnur stjórnvöld eða stofnanir óska eftir, skal innheimta 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.
6. gr. Öryggis- og lokaúttektir.
Innheimt skal fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttekta eldvarnaeftirlits. Fyrir öryggisúttekt skulu innheimtar að lágmarki tvær klukkustundir, 43.430 kr. Fyrir lokaúttekt skulu innheimtar að lágmarki þrjár klukkustundir, 65.145 kr. Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram lágmarkstíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
7. gr. Eldvarnaeftirlit.
Fyrir eldvarnaeftirlit sem hefur í för með sér skriflega áminningu vegna þess að brunaöryggi mannvirkis er ekki viðhaldið í samræmi við forsendur útgefins byggingarleyfis og eðli starfseminnar á hverjum tíma skal innheimta fast gjald 86.860 kr. fyrir hverja skoðun. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.
8. gr. Eftirlit með búsetu í atvinnuhúsnæði.
Fyrir eftirlit með því hvort fólk tekur sér búsetu í atvinnuhúsnæði án þess að byggingarleyfi samkvæmt lögum um mannvirki hafi verið veitt fyrir breyttri notkun skal innheimta 130.290 kr. fyrir hverja skoðun. Slökkviliðsstjóri getur ákvarðað annað gjald byggt á umfangi verkefnis. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.
9. gr. Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.
Fyrir endurkomu vegna eftirfylgni kröfugerðar skal að lágmarki innheimta 43.430 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma, fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
Þegar eftirfylgni kröfugerðar á sér stað utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanna skal að lágmarki innheimta 86.860 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
Fyrir aðra vinnu við eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal innheimta 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.
10. gr. Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.
Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.
Innheimtar eru 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 3. mgr. 9. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.
11. gr. Dagsektir.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.
12. gr. Öryggisvaktir við mannvirki.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkomandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimtar eru að lágmarki 86.860 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.
13. gr. Lokun mannvirkis.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 86.860 kr., auk 21.715 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 31. gr. laga um brunavarnir.
III. KAFLI Önnur verkefni og þjónusta.
14. gr.
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar sem er að vinna að velferð íbúa sveitarfélagsins, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.
Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar dagvinnu hvers starfsmanns er 21.715 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið, er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 29.315 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Innheimta skal að auki álag fyrir vinnu starfsmanns utan dagvinnutíma og á stórhátíðum. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 15.-17. gr., er að lágmarki innheimt fyrir tvo starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 117.260 kr.
15. gr. Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.
Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Þau gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri.
Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla hins vegar ekki undir lögin, né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Slökkviliðsstjóri metur það hverju sinni hvort sinna skuli beiðnum um verkefni sem liggja fyrir utan gildissvið laganna.
Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni slíku ólögboðnu verkefni skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir tvo starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 117.260 kr., auk 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
16. gr. Viðbúnaður vegna upphreinsunar.
Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.
Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir tvo starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 117.260 kr., auk 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
17. gr. Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.
Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í lögum um brunavarnir, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.
Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir tvo starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 117.260 kr., auk 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
18. gr. Ráðgjafarþjónusta
Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
19. gr. Úttektir utan skoðunaráætlunar.
Fyrir úttektir sem eigandi eða forráðamaður mannvirkis óskar eftir og falla utan skoðunaráætlunar Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar skal að lágmarki innheimta 58.630 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma, fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
Fyrir skoðun og ráðgjöf hjá húsfélögum fjölbýlishúsa skal innheimta 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
20. gr. Tækjaleiga.
Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.
Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu- eða körfubíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagning á tækjum er endurskoðuð árlega.
Tæki Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 117.260 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.
21. gr. Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.
Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur getur lögreglustjóri sett fram kröfur um fylgd slökkviliðs við slíkan flutning. Innheimtar eru að lágmarki 117.260 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.315 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.
22. gr. Annað.
Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum. Innheimta skal fyrir alla vinnu skv. 14. gr. og tæki skv. 20. gr.
Komi til verkefnis með minna en 24 klukkustunda fyrirvara skal innheimta lágmarksgjald 117.260 fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu og að auki fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjórar, sbr. 14. gr., auk tækjagjalds skv. 20. gr.
IV. KAFLI Innheimta.
23. gr.
Ísafjarðarbær annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.
Á verð skv. gjaldskrá þessari er lagður 24% virðisaukaskattur ef um er að ræða vörur eða skattskylda þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 4. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
Gjöldum sem til eru komin vegna aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 4. gr. t.o.m. 13. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr., 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.
V. KAFLI Gildistaka og lagastoð.
24. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í lögum nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Gjaldskráin öðlast gildi frá 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar nr. 1245/2024.
Þannig samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 30. september 2025.
Ísafirði, 30. september 2025.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 14. nóvember 2025