Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Orkuveita Reykjavíkur

Málaflokkur

Reykjavík, Vatnamál, Borgarbyggð

Undirritunardagur

22. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1470/2025

22. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir kalt vatn á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu.

1. gr. Vatnsgjald.

Heimilt er að leggja á fasteign almennt vatnsgjald hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign. Mannvirki telst tengt vatnsveitu þegar heimæð hefur verið tengd frá vatnsveitulögn í vatnsinntak notanda.

Svæði

Fastagjald
kr./matseining/ár

Fermetragjald
kr./m²/ár

Reykjavík og Akranes 5.831 226,33
Álftanes 8.488 329,37
Stykkishólmur 7.606 295,13
Grundarfjörður 8.529 375,46
Borgarbyggð og Úthlíð 9.684 426,28

Vatnsgjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og fermetragjaldi eftir stærð samkvæmt fasteignaskrá. Heimilt er að reiknað sé af flatarmáli allra mannvirkja á fasteign.

Bílskúrar og sambærilegt húsnæði sem stendur á fasteign með öðrum mannvirkjum er undanþegið fastagjaldi. Vatnsgjald fer aldrei yfir 0,5% af fasteignamati. Vatnsgjald þetta er miðað við byggingarvísitölu í nóvember 2025 og uppfærist skv. henni í nóvember ár hvert.

Árleg vatnsgjöld mannvirkja í sumarhúsabyggðum skulu að lágmarki vera 45.501 kr.

Vatnsgjald innheimtist af Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu.

Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu er heimilt að gjaldfella álagningu ársins verði greiðslufall á einum eða fleiri reikningum vegna álagningarinnar.

2. gr. Notkunargjald vatns.

Notkunargjald er 48,54 kr./m³, byggingavatn er 224,17 kr./dag og kalt vatn í heildsölu er 55,19 kr./m³.

Fast gjald sem er háð stærð mælis:

Stærð mælis

Fast gjald
kr./dag

Fast gjald fyrir brunna¹
kr./dag

15 mm 57,79 192,87
20 mm 58,83 193,88
25 mm 75,74 210,79
32 mm 84,87 219,94
40 mm 102,11 237,20
50 mm 124,88 260,00
65 mm 168,44 303,23
80 mm 326,82 462,20
≥ 100 mm 343,59 429,07

¹ Verðlagning byggir á 2. ml. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga. Gildir fyrir afhendingu vatns í brunni þar sem skráð fasteign er ekki til staðar.

3. gr. Tengigjöld.

Gjaldskráin miðast við að ídráttarrör fyrir heimæð hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá tengistað Orkuveitunnar við lóðarmörk, að inntaksstað mannvirkis sem Orkuveitan hefur samþykkt.

Þvermál
inntaks:

32 mm 40 mm 50 mm 63 mm 75 mm 90 mm 110 mm

Tengi-
gjald kr.:

380.627 543.942 777.342 1.125.141 1.487.163 1.990.894 2.744.668

Tengigjald fyrir inntök > 110 mm er reiknað út hjá Orkuveitunni.

Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi og fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af tengigjaldi viðkomandi málstærðar.

Byggingavatn og brunnar:

Byggingavatn til og með 50 mm kr.
Uppsettur byggingavatnskrani¹ 123.850
Aftenging byggingavatnskrana, yfirborð ófrágengið 107.544
Aftenging byggingavatnskrana, yfirborð malbik eða steypa 284.283
Uppsettur brunnur fyrir vatnsafhendingu² 94.355

¹ Gildir þegar tengt er við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk.
² Sé sótt um heimæð í brunn þar sem fasteign er ekki til staðar leggur Orkuveitan til brunninn og kemur honum fyrir. Umsækjandi greiðir einnig tengigjald í samræmi við umsótta stærð.

Tengigjöld fyrir frístundahús:

Staðsetning Málstærð kr.
Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð 25 mm 1.104.073
Heimæð lögð í sama skurð og samtímis heitavatnsheimæð OR 25 mm 792.921

Þessi verð miðast við heimæð allt að 100 metrum að lengd. Umsækjandi greiðir sérstaklega fyrir klapparbrot.

Önnur tengiþjónusta:

Önnur tengiþjónusta kr.
Lágmarksgjald fyrir breytingu/færslu heimæða 79.362

Heimilt er að falla frá þessu gjaldi þar sem komið er að endurnýjun lagna.

4. gr.

Gjöld skv. 2. og 3. gr. miðast við byggingarvísitölu fyrir nóvember 2025 og uppfærast á 3ja mánaða fresti, að undanskildu gjaldi vegna annarrar tengiþjónustu.

Gjaldskrá þessi sem er sett í samræmi við lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005 öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1631/2024.

F.h. Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf., 22. desember 2025.

Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál