Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgönguráðuneytið (2001-2009)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál, Öryggismál
Undirritunardagur
22. október 2007
Útgáfudagur
13. nóvember 2007
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1046/2007
22. október 2007
REGLUGERÐ
um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu.
1. gr.
Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu eins og nánar greinir í 2. gr., sbr. reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nr. 612/2005.
2. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 104/2004 frá 22. janúar 2004 um setningu reglna um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2005 frá 8. febrúar 2008. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 22. október 2007.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 13. nóvember 2007